Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, viðsnúningur á heimavelli

Bjarni Bjarnason skrifar
Vodafonedeildin sett

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Áttunda umferð deildarinnar verður leikinn í kvöld og er þetta önnur viðureign liðana. Munurinn er þó sá að skipst hefur verið á heimavallar forskotinu. En heimavallarliðið fær að velja kortið.

Í fyrsta leik kvöldsins mætast XY og GOAT. XY mæta heitir til leiks með tvo sigurleiki í röð og heimavallar forskot í bakhendinni. GOAT hafa sýnt að þeir eiga heima í deildinni en þeir sigruðu Þór í síðustu umferð. Því verður spennandi að sjá hvort XY takist að endurleika fyrri viðureign liðanna á móti nú reyndara liði GOAT.

Í millileik kvöldsins mætast Fylkir og KR. Fyrri viðureign þessara liða var hörkuspennandi og rétt marði lið KR sigur 16 - 13, þá á heimavelli. Fylkir er nú á heimavelli og vonum við eftir annarri eins viðureign þar sem all verður lagt undir.

Lokaleikur kvöldsins er Dusty á móti Þór. Dusty hafa verið óstöðvandi í deildinni hingað til og lagt hvert liðið á fætur öðru í einhliða viðureignum. Þór hafa sýnt hvað í þeim býr í syrpum en ekki náð að spila heilan leik á sannfærandi máta. Ef Þór sýnir sínar bestu hliðar í kvöld verður þetta erfiður biti fyrir Dusty að kyngja.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 XY - GOAT

20:30 Fylkir - KR

21:30 Dusty - Þór

Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.






×