Bílar

Nýir Volvo lögreglubílar fyrir 200 milljónir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Volvo V90 Cross Country við hlið forfeðra sinna.
Volvo V90 Cross Country við hlið forfeðra sinna.

Ríkiskaup hefur, í kjölfar útboðs fyrir hönd lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum tekið lægsta tilboði Brimborgar um kaup á 17 nýjum Volvo lögreglubifreiðum að verðmæti yfir 200 milljónir króna.

Um er að ræða Volvo V90 Cross Country AWD sem eru búnir sérstyrktum undirvagni með sérstaklega öflugu bremsukerfi, kraftmikilli en sparneytinni 235 hestafla B5 Mild Hybrid dísil vél, fjórhjóladrifi og góðri veghæð.

Nýju lögreglubílarnir eru vígalegir.

Lögregluembættin á Íslandi hafa í áratugi notast við Volvo bíla í störfum sínum. Nýju bílarnir fyrir lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum verða afhentir í þremur afhendingum, 6 bílar á þessu ári, 7 bílar árið 2021 og 4 bílar byrjun árs 2022.

Auk þessarar afhendingar fékk lögreglan á Vestfjörðum nýlega afhentan Volvo XC90 AWD sem verður staðsettur á Patreksfirði og mun þjóna víðfeðmu umdæmi lögreglunnar á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×