Lífið

Jóhann Kristófer og Alma Gyða eiga von á „litlum homie“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Alma Gyða og Jóhann Kristófer verða foreldrar í næsta mánuði.
Alma Gyða og Jóhann Kristófer verða foreldrar í næsta mánuði. Vísir/Sylvía

Jarðfræðingurinn Alma Gyða Huntingdon-Williams og rapparinn og fjölmiðlamaðurinn Jóhann Kristófer Stefánsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Joey Christ, eiga von á barni í næsta mánuði.

„Mánuður í að litli homie mæti á svæðið,“ skrifar Jóhann Kristófer við mynd sem hann birti af parinu á Instagram í kvöld. Jóhann Kristófer hefur skipað sér sess í íslensku rapp-senunni en fyrr á árinu sendi hann frá sér plötuna Bestur. Þá var hann annar stjórnenda þáttanna Áttavillt sem sýndir voru á Stöð 2 í sumar. 

Meðal þeirra sem sent hafa parinu heillaóskir með athugasemd við myndina á Instagram eru söngkonan Svala Björgvinsdóttir og tónlistarmennirnir Logi Pedro og Arnar Freyr Frostason.

View this post on Instagram

Mánuður í að litli homie mæti á svæðið

A post shared by joey (@jhnnkrstfr) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.