Bruno allt í öllu þegar Man Utd lagði Everton Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. nóvember 2020 14:27 Bruno Fernandes vísir/Getty Manchester United heimsótti Everton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði heimamanna. Það blés ekki byrlega fyrir gestina því Brasilíumaðurinn Bernard kom Everton yfir með skoti utan vítateigs á 19.mínútu. Vægast sagt vondur varnarleikur hjá Victor Lindelöf og Aaron Wan-Bissaka í aðdraganda marksins. Gestirnir voru hins vegar fljótir að svara því strax á 25.mínútu jafnaði Bruno Fernandes metin með skalla eftir að Luke Shaw fékk allan heimsins tíma til að athafna sig á vinstri kantinum. Portúgalski miðjumaðurinn kom Manchester United í forysta á 32.mínútu þegar hann skoraði með skoti sem átti líklega að vera fyrirgjöf á Marcus Rashford. Enski sóknarmaðurinn náði ekki að skalla boltann sem fór í kjölfarið í stöng og inn. Gylfa var skipt af velli fyrir Alex Iwobi á 67.mínútu og reyndu Everton allt hvað þeir gátu til að jafna metin. Heimamenn voru með alla sína menn frammi í uppbótartíma þegar Harry Maguire vann boltann og Man Utd geystist í skyndisókn sem endaði með því að Edinson Cavani skoraði eftir sendingu frá Bruno Fernandes. Fyrsta mark Úrúgvæans í búningi Manchester United. Lokatölur 1-3 fyrir Man Utd og kærkominn sigur fyrir Ole Gunnar Solskjær. Enski boltinn