Hér fyrir neðan má finna allar uppskriftirnar úr öðrum þætti af Jólaboð Evu.

Nauta Carpaccio með piparrótarsósu
Fyrir 4
- 400 g nautalund
- Góð ólífuolía
- Salt pg pipar
- Sítróna
- 100 g ristaðar furuhnetur
- Góður ostur til dæmis Feykir
- 250 g blandað salat
- 1 dós sýrður rjómi
- 3 tsk piparrótarmauk
- 1 tsk hunang
Aðferð:
- Hreinsið nautalundina mjög vel og skerið í eins þunnar sneiðar og þið getið. (það er gott ráð að setja lundina í frysti í 30 – 40 mínútur áður, en með því er enn betra að skera kjötið þunnt niður).
- Fletjið kjötið út með kökukefli og leggið á diska.
- Stráið salti og pipar yfir kjötið, dreipið góðri ólífuolíu yfir og kreistið smá sítrónusafa yfir kjötið í lokin.
- Ristið furuhnetur á pönnu.
- Skolið og þerrið klettasalat, leggið salatið yfir kjötið.
- Rífið niður ost til dæmis Feykir eða parmesan og stráið ristuðum furuhnetum yfir réttinn.
- Þá er að útbúa sósuna góðu. Blandið sýrða rjómanum, piparrótarmaukinu, hunangi og smá sítrónusafa saman í skál og smakkið sósuna til með salti og pipar.
- Í lokin sprautið þið piparrótarsósunni á diskana eða mótið fallegar kúlur með teskeiðum.
- Berið strax fram og njótið!

Hægeldaðar kalkúnabringur með öllu tilheyrandi
Kalkúnabringa:
- 1.2 kg kalkúnabringa
- 2 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 2 msk kalkúnakrydd
- 4 msk smjör
- 6 – 7 fersk salvíublöð
- 500 ml kjúklingasoð (soðið vatn + kjúklingateningur)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 90°C, ég nota blástur.
- Kryddið bringuna með salti, pipar og kalkúnakryddi. Steikið kalkúnabringuna upp úr olíu og smjör þar til hún er orðin gullinbrún, hellið smjörinu duglega yfir bringuna á meðan hún er á pönnunni og bætið ferskum salvíublöðum saman við.
- Setjið bringuna í eldfast mót og hellið kjúklingasoði í fati, það er snjallt að hella soðinu einu sinni til tvisvar yfir bringuna á meðan hún er í ofninum.
- Eldið við 90°C í 1.5 klst eða þar til kjarnhitinn er orðinn 72°C.
- Mikilvægt að leyfa bringunni að hvíla í 10 – 15 mínútur áður en hún er borin fram.
Kalkúnafylling
- 1 msk ólífuolía
- 2 msk smjör
- 100 g beikon
- 200 g sveppir
- 2 sellerí stilkar
- 2 dl pekanhnetur
- 1 laukur
- 2 epli
- Salt og pipar
- 1 msk ferskar kryddjurtir t.d. salvía, rósmarín og steinselja
- 2 dl rjómi
Aðferð:
- Skerið hráefnið mjög smátt.
- Hitið olíu á pönnu og steikið vel, kryddið með salti og pipar og ferskum kryddjurtum. Bætið smjöri út á pönnuna og steikið áfram þar til hráefnið er mjúkt í gegn. Hellið rjómanum saman við og leyfið fyllingunni að malla við vægan hita í smá stund.
- Hellið fyllingunni í eldfast mót og inn í ofn í 50 – 60 mínútur við 90 gráður.
Sætkartöflumús með rjómaosti
- 7-800 g sætar kartöflur
- 2 msk smjör
- 200 g hreinn rjómaostur
- 1 msk smátt saxað timían
- Salt og pipar
Aðferð:
- Afhýðið kartöflurnar, skerið í nokkra bita og sjóðið í vel söltu vatni.
- Setjið kartöflurnar, rjómaost, salt, pipar, timían og smjör saman í skál og maukið með töfrasprota eða með kartöflustöppu. Það fer eftir áferðinni hvað þið viljið nota.
- Ef ykkur finnst hún of þykk þá einfaldlega bætið þið smá rjóma saman við.
- Berið strax fram.
Waldorfsalat
- 2 ristaðar valhnetur, smátt saxaðar
- 1 dós sýrður rjómi 36%
- 200 ml þeyttur rjómi
- 2 græn epli
- 1 sellerí stilkur
- 25 rauð vínber
- Súkkulaði, magn eftir smekk
Aðferð:
- Kjarnhreinsið eplin og skerið smátt ásamt sellerí og vínberjum.
- Ristið valhnetur á pönnu í smá stund.
- Þeytið rjóma og blandið honum saman við sýrða rjómann.
- Bætið öllum hráefnum saman við rjómablönduna og sáldrið súkkulaði yfir í lokin.
- Best að geyma í kæli í 30 – 60 mínútur áður en salatið er borið fram.
Villisveppasósa
- 250 g sveppir, venjulegir og villisveppir í bland
- 2 msk smjör
- Salt og pipar
- 1 msk ferskt saxað timían
- 1 villisveppaostur
- 300 ml rjómi
Aðferð:
- Skerið sveppi og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti, pipar og ferskum timían.
- Bætið soðinu út í pottinn og leyfa því að sjóða aðeins niður. Rífið niður villisveppaost og bætið saman við ásamt rjómanum. Leyfið sósunni að malla þar til osturinn er bráðinn.
- Smakkið ykkur að sjálfsögðu til með salti og pipar.

Jólapavlovur
MARENSBOTNAR
- 6 eggjahvítur
- 300 g sykur
- 1 ½ tsk mataredik
- 1 tsk vanilludropar
- Salt á hnífsoddi
Aðferð:
- Hitið ofninn í 100°C og ég stilli á blástur.
- Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur.
- Skiptið marensblöndunni niður í nokkur hreiður og það má líka búa til eina stóra köku. Fer bara eftir smekk hvers og eins.
- Bakið kökurnar við 100°C í 90 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið kökurnar kólna alveg og best ef þær fá að kólna í ofninum yfir nótt.
Toblerone rjómi
- 500 ml rjómi
- 1 tsk vanilludropar
- 1 msk flórsykur
- 100 g toblerone súkkulaðisósa, uppskrift að neðan + meiri til þess að skreyta kökurnar í lokin. Gott að gera tvöfalda uppskrift að súkkulaðisósunni!
- 60 g toblerone súkkulaði
- Fersk ber til skrauts
Aðferð:
- Setjið súkkulaðisósu, mikilvægt að hún sé orðin köld og rjóma saman í hrærivél ásamt vanilludropum og flórsykri. Þeytið saman þar til súkkulaðirjóminn er orðinn stífþeyttur.
- Saxið niður toblerone súkkulaðið og bætið út í rjómakremið.
- Fyllið marengskökurnar með súkkulaðirjómanum og skreytið með ferskum berjum. Það er agalega gott að gera meira af súkkulaðisósunni og hella yfir kökurnar í lokin, það setur punktinn yfir i-ið.
Toblerone súkkulaðisósa
- 200 g Toblerone súkkulaði
- 2 – 3 msk rjómi
Aðferð:
- Saxið niður súkkulaðið. Bræðið súkkulaði í rjóma við vægan hita, byrjið á því að setja 2 matskeiðar af rjóma og ef ykkur finnst sósan of þykk þá bætið þið meiri rjóma saman við.
- Kælið alveg áður en þið notið sósuna í rjómakremið.

Créme Brulée
Fyrir 6 – 8
- 500 ml rjómi
- 1 vanillustöng
- 1 tsk vanillusykur
- 6 eggjarauður
- 2 dl söltuð karamellusósa
- 100 g sykur + meiri sykur í lokin ca. 1 tsk ofan á hvert form
Aðferð:
- Hitið ofninn í 150°C (blástur)
- Skerið vanillustöng í tvennt eftir endilöngu og skafið fræin innan úr henni.
- Setjið öll hráefni saman í skál og hrærið vel saman.
- Skiptið blöndunni niður í lítil form, þessi uppskrift dugir í sex til átta form eða eitt stórt form.
- Setjið formin í eldfast mót og hálffyllið formið með heitu vatni. Vatnið á að ná upp að miðju litlu Créme Brulée formanna, með því að fylla eldfasta móti með heitu vatni tryggir það jafnari bakstur á eftirréttinum.
- Bakið við 150°C í 50 – 55 mínútur.
- Kælið eftirréttinn MJÖG vel áður en þið ætlið að bera hann fram, best er að gera hann deginum áður og kæla hann í ísskáp á meðan.
- Stráið smávegis af sykri yfir hvert mót og bræðið, þið getið notað sérstakt eldhúslogsuðutæki eða einfaldlega með því að setja undir grillið í ofninum (fylgist mjög vel með, það tekur nefnilega enga stund fyrir sykurinn að bráðna).

Ristaðar möndlur – þær einföldustu í heimi!
- 8 dl möndlur
- 3 dl sykur
- ½ dl vatn
- ½ msk kanill
- Sjávarsalt á hnífsoddi