Martraðarbyrjun varð United ekki að falli Anton Ingi Leifsson skrifar 17. desember 2020 21:56 Pogba var í stuði í kvöld. Peter Powell/Getty Manchester United vann mikilvægan sigur á botnliði Sheffield United, 3-2, á útivelli í kvöld er liðin mættust á Bramall Lane í Sheffield. Margir ruku upp stór augu þegar byrjunarlið Man. United var tilkynnt en í markinu var Dean Henderson. David de Gea var á bekknum en Ole Gunnar Solskjær sagði fyrir leikinn að þetta væri fyrirfram ákveðið fyrir þó nokkru síðan. Það voru einungis liðnar fimm mínútur er David McGoldrick kom Sheffield yfir, einmitt eftir skelfileg mistök Henderson í markinu, sem var allt of lengi að hreinsa boltanum frá marki. Á 26. mínútu jafnaði Marcus Rashford metin og sjö mínútum síðar voru United komnir yfir eftir frábæra sendingu Paul Pogba. Anthony Martial gat ekki annað en skorað. 10 - Manchester United are the first side ever to score 2+ goals in 10 consecutive away games in the Premier League; indeed, they are the first club to do so in the English top-flight since Tottenham in October 1960. Clinical. pic.twitter.com/3bZlwx1Lxo— OptaJoe (@OptaJoe) December 17, 2020 United komst svo í enn vænlegri stöðu á 51. mínútu. Eftir frábæra skyndisókn skoraði Marcus Rashford er hann skaut nánast í gegnum Aaron Ramsdale í markinu. Flestir héldu þá að leik væri lokið. Svo var ekki. David McGoldrick skoraði annað mark sitt og annað mark Sheffield á 87. mínútu og hélt vonum Sheffield á lífi en nær komust heimamenn ekki og mikilvægur sigur United staðreynd. United er eftir sigurinn í sjötta sætinu með 23 stig en Sheffield er á botninum með eitt stig. Most AWAY points in PL history:1,002 - MANCHESTER UTD870 - Chelsea852 - Arsenal811 - Liverpool pic.twitter.com/89ihl9AZ4o— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) December 17, 2020 Enski boltinn