Lífið

Árlegir hátíðartónleikar Sigríðar og Sigurðar streymt beint heim í stofu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius koma fram í beinni í Hörpunni.
Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius koma fram í beinni í Hörpunni.

Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson koma fram á sínum árlegum hátíðartónleikum í beinni útsendingu í gegnum streymi, myndlyklum Vodafone og í Stöð 2 appinu.

Undanfarin ár hafa þessir tveir af ástsælustu söngvurum landsins haldið árlega hátíðartónleika í Eldborgarsal Hörpu í aðdraganda jólanna. Eins og öllum ætti að vera ljóst leyfir núverandi ástand ekki slíka samkomu en í staðinn verður tónleikunum streymt og þeir gerðir aðgengilegir fyrir öll heimili landsins og fólk búsett erlendis.

Miðaverðið er 3500 krónur og hefjast tónleikarnir klukkan átta á þriðjudaginn 22. desember.

Á sama tíma höfðu Sigurður og Sigríður einmitt ráðgert að stíga á stokk í Eldborg en gera það nú í staðinn á öðrum vettvangi.

Hægt er að velja á milli þriggja leiða til að njóta tónleikanna:

Myndlykill Vodafone

Inni á myndlykli Vodafone verður hægt að kaupa beinan aðgang að tónleikunum og fer greiðslan beint í gegnum símareikning viðkomandi, eins og önnur þjónusta á myndlyklinum. Hægt er að finna viðburðinn á forsíðu viðmóts undir Viðburðir.

Stöð 2 appið

Notendur vefsjónvarps Stöðvar 2 geta einfaldlega skráð sig inn á appið, fundið tónleikana undir Viðburðir á forsíðunni í viðmótinu og keypt þar aðgang. Tilvalin leið t.d. fyrir þá sem vilja horfa á tónleikana í gegnum AppleTV.

Vefstreymi í gegnum vafra

Miðasala fer fram í gegnum Tix.is. Þú ferð einfaldlega inn og kaupir miða eins og um venjulegan tónleikamiða sé að ræða og færð svo sendan kóða sem þú notar til að fara inn á lokað svæði þar sem hægt er að njóta tónleikanna í gegnum tölvu eða annað nettengt snjalltæki.

Hér að neðan má sjá þegar Sigríður og Sigurður tóku jólalag hjá Gumma Ben og Sóla Hólm á Stöð 2 á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.