Lífið

Æft með Gurrý - 5. þáttur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fimm æfingar á fimm mínútum! 
Fimm æfingar á fimm mínútum!  Vísir/Æft með Gurrý

Í þætti dagsins af Æft með Gurrý er farið í erfiða æfingu en þú getur auðvitað stjórnað álaginu. Í myndbandinu er lögð áhersla á fætur en þó eru líka gerðar armbeygjur í lokin. Fimm æfingar á fimm mínútum.

Þeir sem vilja meira krefjandi æfingu geta farið yfir myndbandið nokkrum sinnum. Á skjánum er niðurtalning svo þú getir fylgt Gurrý í æfingunum! Þátt fimm má horfa á í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Gurrý þjálfari setti saman seríu af myndböndum þar sem farið er í æfingar sem henta vel heima fyrir, hvort sem það er í neyð eður ei. Myndböndin eru stutt og hnitmiðuð og eru byggð upp þannig að hægt er að endurtaka hvert um sig nokkrum sinnum til þess að ná góðri æfingu.

Fyrstu fjóra þættina af æft með Gurrý má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Æft með Gurrý - 4. þáttur

Tengdar fréttir

Æft með Gurrý - 4. þáttur

Í fjórða þættinum af æft með Gurrý er farið yfir liðkandi æfingar. Gurrý sýnir æfingar sem opna líkamann og fá axlir og mjaðmir í gang.

Einfaldar æfingar sem langflestir ættu að geta gert

Þjálfarinn Guðríður Torfadóttir, betur þekkt sem Gurrý, byrjar á morgun með æfingaþætti hér á Vísi. Þættirnir kallast Æft með Gurrý en hún segir mikilvægt að huga að heilsunni og undirbúa kroppinn undir áföll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.