Lífið

Margrét Erla Maack safnar fyrir fæðingarorlofi á Karolina Fund

Stefán Árni Pálsson skrifar
Margrét og Tómas eiga von á barni.
Margrét og Tómas eiga von á barni. Mynd/Sigtryggur Ari
„Íslenska fæðingarorlofskerfið er illa hannað með tilliti til fólks með fljótandi tekjur,“ segir á Karolina Fund síðu sem stofnuð hefur verið til styrkar skemmtikraftsins Margrétar Erlu Maack og komandi fæðingarorlofs.

„Ég heiti Margrét Erla Maack og er sjálfstætt starfandi fjöllistadís, sprellikerling og danskennari. Í febrúar komst ég að því að ég væri ófrísk og hef síðan þá staðið í því að reyna að átta mig fæðingarorlofskerfinu á Íslandi. Dóttir mín fæðist að öllum líkindum um mánaðamótin september/október og síðustu samskipti við fæðingarorlofssjóð benda til að ég hafi afskaplega takmarkaðan rétt á fæðingarorlofi þar sem þeir mánuðir sem þau líta á til viðmiðunar teljast ekki vera full innkoma að þeirra mati. Þetta er ósanngjarnt, þar sem eðli vinnu minnar er fljótandi, stundum er mikið að gera og stundum ekki neitt,“ segir Margrét á síðunni.

„Með því að styrkja fæðingarorlofið ertu í raun að kaupa þér alls kyns skemmtun á útsöluverði, sem ég mun efna að fæðingarorlofi loknu þegar Tómas faðir hennar, sem er í „alvöru vinnu“,  tekur við fæðingarorlofskeflinu. Ég er að reyna að safna um 500.000 sem eru 100.000 per mánuð í orlofinu sem ég hyggst taka mér, eftir að efniskostnaður, sendingargjöld og salarleiga hefur verið innt af hendi.“

Margrét Erla og Tómas Steindórsson eiga von á barni á næstunni en Margrét fer yfir samskipti hennar og endurskoðanda við Fæðingarorlofssjóð á síðunni.

Hér að neðan má sjá myndband sem er inni á söfnunarsíðunni og hér er hægt að styrkja málefnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.