Veiði

Veiði hefst í Elliðavatni á fimmtudaginn 19. apríl

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiði hefst í Elliðavatni á sumardaginn fyrsta.
Veiði hefst í Elliðavatni á sumardaginn fyrsta. Mynd úr safni
Elliðavatn sem er á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs er eitt vinsælasta silungsveiðivatn á Íslandi en veiði hefst í vatninu á sumardaginn fyrsta.

Vatnið hefur lengi verið einn besti skóli vatnaveiðimanna sem búa í grend við vatnið enda getur það verið ansi slungið að veiða.  Þrátt fyrir að bleikju hafi að einhverju leiti farið fækkandi í vatninu hefur urriðinn sótt verulega í sig veðrið og er svo komið að vel veiðist af honum allt sumarið en þó mest frá opnun og fram í miðjan júlí.  Fæðuframboðið er ekki ennþá komið á fullt svo urriðinn er oft á tíðum ansi tökuglaður á fyrstu dögunum.  Mest er veitt í vatninu austanverðu og er ströndin frá Elliðavatnsbænum og að Þingnesi það svæði sem mest er veitt á.

Nokkur veiði er þó líka í Helluvatni en urriðinn liggur þó yfirleitt ansi langt útí vatninu í straum sem þar gætir við botninn og þeir sem þekkja veiðina í Helluvatni vita eins og er að það getur verið erfitt að fá hann til að taka.  Bestu flugurnar í vorveiðina hafa verið litríkar straumflugur og það hefur skilað bestum árangri að nota granna tauma í rúmlega stangarlengd. leyfa flugunni að sökkva og draga hana inn í stuttum snöggum rykkjum og stoppa inn á milli.  Elliðavatn er hluti af Veiðikortinu.

 








×