Tónlist

Þjóðin hefur 50% vægi

Þjóðin hefur 50% vægi Skapast hefur hefð fyrir því á undanförnum árum að leyfa almenningi að taka þátt í kosningu í gegnum síma og SMS í Söngkeppni framhaldsskólanna. Frá árinu 2005 hefur farið fram símakosning samhliða störfum dómnefndar og því hefur þjóðin helmingsvægi í vali á sigurvegurum keppninnar.

Allir keppendur fá sitt eigin símanúmer sem almenningur getur svo kosið meðan á keppninni stendur. Það fylgir því mikið álag á símkerfi þegar símakosning fer fram og á síðasta ári voru send um tíu þúsund SMS. Forsvarsmenn Söngkeppninnar telja að búast megi við að sú tala muni líklega tvöfaldast í ár en hægt verður að kjósa frá því að fyrsta atriði fer á svið og í 20 mínútur eftir lokakeppnisatriðið. Símakosningin gæti því spannað tvær og hálfa klukkustund sem gefur þjóðinni góðan tíma til að velja það sem henni líkar best. Með þessu móti er hægt að finna hinn gullna meðalveg milli þjóðar og dómnefndar.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.