Sjá einnig: Måns-áhrifanna gætir víða
Útsendari Vísis, Laufey Helga Guðmundsdóttir, segir keppnina í ár einkennast af þrennu; textaendurtekningum, einsöngvurum og sjónrænni grafík í þriðja veldi. Sergey tikkar í öll þessi box en á æfingunni í gær mátti sjá hann dansa í takt við grafík á bak við hann en athygli hefur vakið hversu grafíkin sem hann notast við er keimlík þeirri sem fulltrúi Íslendinga, Greta Salóme, notaði við flutning á laginu Hear Them Calling í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Bæði feta þau Sergey og Greta í fótspor Svíans Måns Zelmerlöw sem vann Eurovision í fyrra með laginu Heroes. Sviðsframkoma hans vakti ekki síður athygli en lagið en um var að ræða samspil manns og tækni þar sem Måns hreyfði sig í takt við grafík sem var varpað fram á LED-skjá fyrir aftan hann þannig að svo virtist sem grafíkin og Måns rynnu saman.