Veiði

Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Landssamband Veiðifélaga birti nýjar tölur í gærkvöldi sem sýna að þrátt fyrir að seinni hluti laxveiðitímabilsins sé háflnaður en ennþá líf í kolunum.

Ytri Rangá situr eins og síðustu vikur sem fastast í efsta sæti listans yfir aflahæstu árnar en vikuveiðin í henni var 865 laxar og er heildarveiðin komin í 3746 laxa og dettur yfir 4000 laxa rétt fyrir helgi haldi þessi veisla áfram.  Aðrar ár sem ná vikuveiði yfir 100 laxa eru Eystri Rangá með 310 laxa veiði í vikunni en hún hefur sannarlega farið á flug núna í ágúst og góður kraftur virðist vera í laxagöngunum í hana.  Miðfjarðará var með 213 laxa vikuveiði og er komin í 2386 laxa í heildana.  Þverá og Kjarrá eru komnar í 1600 laxa en vikuveiðin þar var 134 laxar.  Blanda var með 112 laxa veiði í vikunni.

Síðan er vert að nefna Norðlingafljót en þar var veiðin 293 laxar en heildarveiðin fór í 548 laxa eftir þessa viku.  Þetta verður líklega ,þegar lokatölur koma í hús í byrjun september úr þeim ám sem opnuðu fyrst, yfir meðalsumri í nokkrum ám en ljóst að veiðin fyrir norðan að Miðfjarðá undanskilinni er langt frá sínu besta og vel undir meðaltali.  Heildarlistann má finna á www.angling.is

 






×