Bakþankar

Desibeladurgur

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Jólasveinar koma til byggða um helgina. Svona opinberlega.

Óopinberlega eru þeir búnir að vera á stjái síðan einhverntíma í

nóvember til að sjá aðra og sýna sig, einkum þó börnum við ýmis

tækifæri. Jólasveinar tilheyra aðventunni, jólaundirbúningnum og

ballinu. Ekkert jólaball er með jólaböllum án þess að þar sé að

minnsta kosti einn jólasveinn sem dansar með börnunum kringum

jólatréð, syngur vitlausa texta, dettur á rassinn og gefur stundum

sælgæti eða smágjöf.

Jólasveinninn kemur samt ekki á jólaballið af sjálfsdáðum. Hann þarf

að dekstra og lokka til að láta sjá sig og kalla þarf á hann eins og

hvern annan kött. Og þá dugar ekkert minna en að öll börnin á svæðinu

öskri úr sér lungun. Og raddböndin. Stjórnendur jólaballsins hvetja

börn, sem fyrri hluta jólaballsins hafa haldist í hendur og dansað

prúð og stillt kringum einiberjarunninn, til að hefja upp viðkvæmar

barnsraddirnar og garga eins hátt og þau mega aldrei nokkursstaðar og

nokkurntíma gera fyrr eða síðar á árinu.

Jólasveinar eru greinilega heyrnardaufir. Það þarf yfirleitt að öskra

á þá svona fjórum-fimm sinnum til að þeir láti sjá sig. Kannski standa

þeir fyrir utan með desibelamæla og neita að fara inn fyrr en hávaðinn

er orðinn þeim ásættanlegur. Kannski er í samningum

Jólasveinafélagsins og Ríkisins að þeir eigi heimtingu á ákveðnum

hávaða í desembermánuði ár hvert.

Ég veit það ekki. Eins og svo margt annað þá er jólasveinum hvorki

beint til mín né gegn mér. Ég er einfaldlega ekki í markhópnum og má

þessvegna ekki vera með nein leiðindi út í þá. En ég man að þegar ég

var lítil var mér nákvæmlega eins innanbrjóst og núna. Ég var hrædd

við jólasveina, kveið fyrir hávaðanum og vildi helst fara heim af

ballinu áður en þeir komu.

Það sem ég velti fyrir mér er því þetta: eru jólasveinar og hávaði

óaðskiljanleg eind þar sem hvorugt þrífst án hins? Er allt þetta með

bjúgun, hurðirnar, kertin og ketið bara yfirskyn fyrir geimverur sem

lifa á desibelum sem helst þarf að mynda með grönnum og viðkvæmum

raddböndum? Eru hávær barnaóp ómissandi hluti af jólunum?

Ég er ekkert sannfærð um að það þurfi ekkert endilega að leggja

jólaböll undir öskur. Ég held að börnum líði ekkert betur þó þau fái

að öskra haftalítið nokkrum sinnum á ári. Og þrátt fyrir allt hef ég

þá bjargföstu barnatrú að jólasveinar hafi ýmislegt annað fram að

færa.








×