Lífið

Þorbjörn og Ása eignuðust dreng

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ása og Þorbjörn saman á síðustu árshátíð Sýnar í maí 2019.
Ása og Þorbjörn saman á síðustu árshátíð Sýnar í maí 2019. vísir/Marinó Flóvent

„Frumburður okkar Ásu, hraustur og fallegur drengur, fæddist á Landspítalanum í gærmorgun. Drengurinn, sem heldur hér um baugfingur föður síns, var 13 merkur (3,2 kg.) og 49 cm. Hann hefur varir, nef og höku föður síns en augnsvip og eyru móður sinnar. Við höfum þegar gefið drengnum nafn og heitir hann Tómas. Öllum heilsast vel.“

Þetta ritar fjölmiðlamaðurinn og lögmaðurinn Þorbjörn Þórðarson í færslu á Facebook og birtir í leiðinni mynd af drengnum.

Hann og Ása Dagmar eignuðust í gær sitt fyrsta barn. Þorbjörn vann lengi vel sem fréttamaður á Stöð 2 en starfar í dag á lögmannsstofunni LPR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.