Bíó og sjónvarp

Tvö fyrirtæki slást um Star Trek

Snorri Þórisson vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið náði tali af honum.
Snorri Þórisson vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið náði tali af honum.

„Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál,“ segir Jón Bjarni Guðmundsson hjá Saga Film. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ríkir nú kapphlaup milli Saga Film og Pegasusar um tökur á nýjustu Star Trek-myndinni.



DV greindi frá því í gær að fulltrúar frá kvikmyndaverinu Paramount væru staddir hér á landi til að skoða tökustaði fyrir myndina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa bæði Saga Film og Pegasus sýnt þeim hentuga tökustaði. Hollywood-mennirnir eru hins vegar mjög varir um sig og hafa krafist algjörrar þagmælsku af hendi fulltrúa fyrirtækjanna og því eru ferðirnar algjört hernaðarleyndarmál. Snorri Þórisson, eigandi Pegasusar, vildi ekkert tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum, hann sagðist hvorki geta sagt af eða á.



Ef af verður er hins vegar ljóst að verkefnið verður ógnarstórt, jafnvel stærra en Flags of our Fathers sem skilaði ófáum milljónum í kassann hjá True North-framleiðslufyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×