Lífið

Dennis Quaid keypti Valentínusargjöf fyrir konuna á Íslandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bandaríski leikarinn Dennis Quaid ætlar ekki að láta grípa sig í bólinu þennan Valentínusardaginn. Hann hefur þegar keypt gjöf fyrir konu sína Kimberley en um er að ræða JS úr Gilberts úrsmiðs á Laugaveginum.

Quaid er staddur hér á landi við tökur á sjónvarpsþáttunum Fortitude en tökur standa sem kunnugt er yfir á Reyðarfirði. Hann var þó í höfuðborginni á föstudaginn og keypti fyrrnefnt úr handa konunni áður en hann sótti hana út á flugvöll.

Quaid er mikill áhugamaður um flug og með flugréttindi. Honum leyst svo vel á Frisland 1941 flugmannaúrið frá JS að hann skellti sér sjálfur á eitt. Úrið var tileinkað Reykjavíkurflugvelli sem var byggður af breska hernum en byggingu hans lauk árið 1941.

Quaid er langt í frá fyrsta Hollywood-stjarnan sem kemur við hjá Gilberti og kaupir úr. Segja má að úrin hafi slegið í gegn eftir gosið í Eyjafjallajökul árið 2010. Sama ár keypti Yoko Ono úr fyrir son sinn Sean.

Quentin Tarantino, Jude Law, Elvis Costello, Eli Roth, Viggo Mortensen og Dalai Lama eiga einnig úr frá Gilberti.

Gilbert tekur ávallt myndir af sér með frægum viðskiptavinum og hengir upp á vegg hjá sér. Í bítið tók Gilbert tali árið 2013 og ræddi við hann um gestina frægu.


Tengdar fréttir

Dennis Quaid er viðkunnanlegur Texasbúi

Björn Hlynur Haraldsson er þessa dagana við tökur á annarri seríu sjónvarpsþáttanna Fortitude. Tökur fara fram á Reyðarfirði en meðal stórleikara í þáttunum eru Dennis Quaid og Sofie Gråbøl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.