Körfubolti

Jakob Örn sjóðheitur í sigri Drekanna

Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er með yfirburðastöðu í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta og styrkti stöðu sína enn frekar í kvöld.

Þá unnu Drekarnir öruggan útisigur, 87-101, á KFUM Nässjö. Jakob Örn Sigurðarson fór hamförum í liði Sundsvall og skoraði 33 stig.

Hlynur Bæringsson einnig sterkur sem fyrr með 9 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar.

Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins áttu ekki eins gott kvöld því þeir töpuðu, 83-77, á útivelli gegn LF Basket.

Pavel átti fínan leik og skoraði 13 stig og tók 6 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×