Sport

Undir smásjá Crystal Palace

Ian Dowie, knattspyrnustjóri Crystal Palace, ætlar sér að skoða Víglund betur.
Ian Dowie, knattspyrnustjóri Crystal Palace, ætlar sér að skoða Víglund betur.

Vopnfirðingurinn Víglundur Páll Einarsson gæti verið á leiðinni til enska 1. deildarliðsins Crystal Palace, en hann var nýlega til reynslu hjá félaginu í tíu daga og verður skoðaður nánar af forráðamönnum félagsins í leik með liði sínu, Þór frá Akureyri.

"Þetta var skemmtilegur tími og gaman að þetta skyldi hafa gengið vel. Forráðamenn liðsins sögðust ætla að skoða mig betur í leik með Þór og vonandi gengur vel hjá mér í þeim leik." Víglundur lék með liði Fjarðabyggðar í sumar og spilar oftast sem bakvörður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×