Viðskipti innlent

Hámarkslán hækka

Íbúðalánasjóður hefur hækkað hámarkslán vegna kaupa á notuðum íbúðum. Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur ákveðið að hækka hámarkslánin úr 9,2 milljónum króna í 11,5 milljónir. Hámarkslán vegna nýbygginga hækka einnig. Þau hækka úr 9,7 milljónum króna í 11,5 milljónir. Auk þessa hefur ráðherra ákveðið að almennt lán að viðbættu viðbótarláni geti að hámarki orðið 13 milljónir króna. Þessar breytingar hefa þegar tekið gildi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×