Fiskar i Kleifarvatni sagðir drepast í stórum stíl Garðar Örn Úlfarsson skrifar 26. júlí 2012 08:15 Kafari er sagður hafa séð dauða og rotnandi fiska á ýmsum stöðum í Kleifarvatni. Mynd / Héðinn Ólafsson.
Mikið er af dauðum fiski í Kleifarvatni samkvæmt spjallvef veiðimanna. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hyggst leita til Veiðimálastofnunar sem segir ekki skrítið þótt ýmislegt gangi í vatninu. „Það er eitthvað mikið að ske þarna og mikið að," segir stangveiðimaðurinn Guðmundur Falk á spjallsvæði vefsins veidi.is þar sem hann gerir stöðuna í lífríkinu í Kleifarvatni að umtalsefni. „Kafari sem ég þekki til fór í Kleifarvatn, og ekki bara á helstu staði þar sem kafað er, heldur við austurlandið líka og er mikið af dauðum fiski í botninum, bæði stór og smár og mikil rotnun," skrifar Guðmundur á veidi.is. Ekki náðist í Guðmund í gær en í færslu á spjallsvæðinu spyr hann hvort ekki þurfi að athuga með gæði vatnsins. Brennisteinsvetni streymi upp um sprungur á botni vatnsins og sé að aukast það mikið að það drepi fiskinn.Kafarinn hafi samband Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur Kleifarvatn til umráða og selur þar veiðileyfi. Vilborg Reynisdóttir, formaður félagsins, kveðst ekki hafa vitneskju um stórfelldan fiskadauða í vatninu. „Við vildum helst að viðkomandi kafari myndi láta okkur vita hvar þetta er svo við getum farið í einhverja rannsókn," segir Vilborg og bendir á að svæðið sé jarðfræðilega óstöðugt. „Það getur komið gas upp og fiskurinn synt yfir. Þetta gæti hafa gerst í mörg ár án þess að við vitum af því," bætir Vilborg við og kveðst ætla að setja sig í samband við Veiðimálastofnun. „Ég ætla að athuga hvort þeir geti ekki liðsinnt okkur með þetta."Miklar breytingar en engar rannsóknir Þórólfur Antonsson fiskifræðingur segir Veiðimálastofnun ekki hafa haft spurnir af fiskadauða í Kleifarvatni. Þórólfur minnir á að miklar breytingar hafi orðið við Kleifarvatn eftir Suðulandsskjálftann árið 2000. Vatnsborðið hafi lækkað afar mikið en sé þó breytilegt og hverir kraumi undir yfirborðinu. „Það er því ekki furða þótt eitthvað gangi á en við höfum ekki gert neinar rannsóknir á því," segir hann. Þórólfur segir ýmis efni koma upp með heita vatninu og eftir því sem yfirborð Kleifarvatns lækki hafi þessi efni hlutfallslega meiri áhrif. „Svo gæti þetta verið staðbundið í vatninu og fiskurinn villst inn á einhver svæði sem eru slæm," segir Þórólfur og bætir við að Veiðimálastofnun vildi gjarnan að betur væri fylgst með Kleifarvatni í kjölfar þeirra breytinga sem orðnar eru vegna jarðskjálftanna.gar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði Sportveiðiblaðið er komið út Veiði Teljaraniðurstöður úr Gljúfurá Veiði