Bíó og sjónvarp

Enn eitt vöðvabúntið

Arnold leikur sjálfan sig í hasarmyndinni The Expendables.
Arnold leikur sjálfan sig í hasarmyndinni The Expendables.
Arnold Schwarzenegger hefur bæst í hóp vöðvabúntanna sem leika í hasarmyndinni The Expendables. Arnold mun leika sjálfan sig, ríkisstjóra Kaliforníu, í litlu hlutverki enda verður hann aðeins á tökustað í einn dag.

Aðrir leikarar verða Jet Li, Mickey Rourke, Jason Statham, Dolph Lundgren, Forest Withaker, Eric Roberts og Sylvester Stallone, sem einnig leikstýrir myndinni. Fjallar hún um hóp málaliða sem reyna að ráða einræðisherra í Suður-Ameríku af dögum. Myndin verður frumsýnd á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.