Draumabyrjun Solskjær Anton Ingi Leifsson skrifar 22. desember 2018 19:15 Solskjær fagnar í kvöld. vísir/getty Ole Gunnar Solskjær fékk heldur betur druamabyrjun sem stjóri Manchester United er liðið vann öruggan 5-1 sigur á Cardiff á útivelli í kvöld í fyrsta leik Norðmannsins. Eins og flestir vita tók Ole Gunnar við United út tímabilið í vikunni eftir að Jose Mourinho var rekinn. Norðmaðurinn fékk drumabyrjun á Cardiff leikvanginum. Eftir einungis þrjár mínútur voru United komnir í 1-0. Markið skoraði Marcus Rashford beint úr aukaspyrnu en spurningarmerki má setja við Neil Etheridge í markinu. Á 29. mínútu var staðan orðinn 2-0. Þá skoraði Ander Herrera eftir að hann fékk boltann fyrir utan vítateig Cardiff, þrumaði boltanum í varnarmann og í bláhornið. Cardiff minnkaði þó muninn á 38. mínútu er Victor Camarasa skoraði úr vítaspyrnu eftir að Marcus Rashford handlék knöttinn innan vítateigs United. Veislu United í fyrri hálfleik var þó ekki lokið. Anthony Martial kom þeim í 3-1 eftir stórkostlega spilamennsku fjórum mínútum fyrir hálfleik. Einnar snertingar fótbolti sem endaði með marki. 3-1 í hálfleik og það breyttist í 4-1 á 57. mínútu er Jesse Lingard skoraði úr vítaspyrnu eftir að Sol Bamba braut á Lingard sjálfum. Lingard var svo aftur á ferðinni í uppbótartíma eftir laglega sendingu Pogba og lokatölur 5-1. United er í sjötta sætinu með 29 stig en Cardiff er í sautjánda sætinu með fjórtán stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn