Lífið

Lúxuskjötsúpa með sætum keimi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Ef laukurinn er svissaður áður en hann fer í súpuna breytist bragðið til hins betra.
Ef laukurinn er svissaður áður en hann fer í súpuna breytist bragðið til hins betra. Vísir/Stefán
„Það er þess virði að leggja vinnu í að þvo hráefnið í íslenska kjötsúpu, bæði kjötið og grænmetið,“ segir Íris Hera Norðfjörð hjá Kryddlegnum hjörtum við Hverfisgötu. Hún segir oft sag og blóð á kjötinu sem myndi endalausa froðu í pottinum þegar suðan er komin upp. Auk þess komi „falleg orka“ í grænmetið við þvottinn, þannig að það ljómi.

„Ég nota meiri lauk en margir aðrir og svissa hann aðeins í olíu áður en hann fer í súpuna, þá breytist bragðið af honum úr hráabragði í sætan keim,“ segir hún og kveðst vilja hafa grænmetið það lítið soðið að hún finni aðeins fyrir því undir tönn.

Íris Hera sýður ekki kartöflur, haframjöl eða hrísgrjón í kjötsúpu. „Það skapar gas í maganum ef hrein kolvetni og prótein eru soðin saman,“ segir hún til skýringar og bætir við: „Það er mikilvægt að raða mat rétt ofan í sig til að líða vel af honum og líka að blessa hann í huganum.“

Íslensk kjötsúpa

5 laukar smátt skornir

3 hvítlauksrif smátt skorin

olía

½ poki súpujurtir

2 l vatn

1 kg lambakjöt, bógur eða læri

2 msk. lambakjötskraftur

½ hvítkálshaus skorinn í bita

4 gulrætur skornar í bita

1 rófa meðalstór, skorin í bita

Setjið olíuna í pott og gljáið laukinn og hvítlaukinn í henni. Fituhreinsið kjötið. Hellið vatninu yfir laukinn og setjið kjötið, súpujurtirnar og lambakraftinn í. Sjóðið kjötið í klukkutíma, takið það þá upp úr og skerið í bita, skellið því út í pottinn aftur, ásamt hvítkálinu, gulrótunum og rófunni og sjóðið í 20 mínútur til hálftíma. Bætið við lambakrafti og hvítum pipar eftir smekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.