Bíó og sjónvarp

Verst leikna ástarsamband kvikmyndasögunnar

Ástarsamband Padme Amidala og Anakin Skywalker í nýju Stjörnustríðsmyndunum var valið það minnst sannfærandi í kvikmyndasögunni.

Könnun fór fram á heimasíðu fyrirtækisins Pearl and Dean sem sér um auglýsingar í kvikmyndahúsum. Flestum sem tóku þátt fannst samleikur þeirra Natalie Portman og Hayden Christensen gamaldags og ekki nógu lostafullur.

Eins og flestir Stjörnustríðsáhugamenn vita var ástarsamband þeirra Padme og Anakin skammvinnt og brotakennt þar sem Anakin var á barmi þess að hallast á sveif með myrkraöflunum og verða að hinum alræmda Svarthöfða. Sambandið bar þó ávöxt; þau Loga geimgengil og Lilju prinsessu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.