Vala Matt sækir hér Þóru Guðmundsdóttur heim á farfuglaheimilið Hafölduna á Seyðisfirði.
Þóra töfrar fram fljótlega, ódýra og holla selleríbuffmáltíð eins og sjá má úr meðfylgjandi myndskeiði.
Vala stýrir þættinum Sælkeraferðin, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum.
Þóra lumar einnig á fleiri uppskriftum en hún deilir hér með lesendum Vísis uppskrift að þorski með steiktu grænmeti.
Þorskur með steiktu grænmeti
Þorskbitar steiktir á pönnu í smjöri og olíu. Passa að pannan sé vel heit áður en fiskurinn er settur á pönnuna. Kryddað með salti og pipar. Hella síðan með skeið olíunni yfir fiskinn á meðan hann steikist.
Steikt salat, steikt uppúr chiliolíu og hvítlauksolíu
Niðursneitt hvítkál
Forsoðnar kartöflur
Paprika
Tómatar
Rauðlaukur
Grænkál
Pannan verður að vera vel heit. Setja chili olíuna og hvítlauksolíuna á pönnuna og svo er niðursneitt grænmetið steikt uppúr olíunum.
Chilisósa
Chilisósan er einföld hjá Þóru. Hún setur lófafylli af íslenskum chili kjarnhreinsuðum og setur svo repjuolíu og blandar. Og hvítlauksolían er bara hvítlaukur og olía blandað saman.
Marrokkósósa
300 gr. majones
300 gr. súrmjólk
50 gr. sólþurrkaðir tómatar
10 gr. hvítlaukur
2 tsk. salt
1 tsk. pipar
3 tsk cumin
3 tsk chillíduft
3 tsk paprikukrydd
3 tsk. karrí
200 ml. ólífuolía
smá sítrónusafi - nýkreistur og fínn.