Blaðamaður hljóp undir bagga með Sigmundi Davíð og gaf öryrkja barnabók Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. desember 2015 16:33 Skytturnar þrjár, Sigmundur Davíð, Helen Sjöfn og Ómar. Vísir
Helen Sjöfn Steinarsdóttir, öryrkinn sem sendi forsætisráðherra beiðni um fjárhagslega aðstoð eða lán fyrir skemmtilegri barnabók til að gefa barnabarni sínu í jólagjöf, hefur fengið ósk sína uppfyllta. Ómar Valdimarsson blaðamaður greinir frá því að hann hafi sótt Helen heim með nýútkomna bók sína og gefið henni.Í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag sótti Helen aðeins að forsætisráðherra og segist bíða spennt „eftir þeirri örsnöggu lífskjarabót sem þú hefur boðað okkur um áramótin.“ „En, nú eru að koma jól og ég verð að viðurkenna að mig dreymir um að geta gert mér smá dagamun og líka glatt mína nánustu. Ég á eitt barnabarn sem mig langar að gefa jólagjöf og þar sem ég er ekki einu sinni með tíu þumalfingur heldur tuttugu tær eru föndur og/eða handavinna út úr myndinni. Barnið er mikill bókaormur og langar mig óskaplega að geta keypt handa því einhverja af þeim skemmtilegu barnabókum sem voru að koma út,“ sagði Helen sem segist ekki geta hugsað sér að leita til fjölskyldu sinnar eina ferðina enn. Hún hafi styrkt hana eftir bestu getu til þessa en nú sé nóg komið.Hljóp undir bagga með Sigmundi Davíð „Því datt mér í hug, kæri Sigmundur Davíð, að þú prívat og persónulega, værir kannski til í að styrkja mig um smáupphæð fyrir jólin (held að nýútkomin barnabók gæti kostað 3-4 þús. kr.)? Ég frétti nefnilega á skotspónum að þú hefðir fengið sanngjarna launahækkun, meira að segja nokkra mánuði aftur í tímann, og ert því kannski aflögufær!“ Ekki liggur fyrir hvort beiðni Helen úr pistlinum hafi ratað á borð forsætisráðherra en þó er greinilegt að beiðnin hefur vakið athygli. Þeirra á meðal er fyrrnefndur Ómar sem segist hafa komið við „heima hjá hinni ljúfu Helen í dag og færði henni nýútkomna barnabók sína, 13 skrýtnir jólasveinar, sem hann skrifaði með mömmu sinni. „Þar sem ráðherrann á sjálfsagt annríkt þessa dagana við að ljúka við aðra umræðu um fjárlagafrumvarpið ákvað ég að hlaupa undir bagga með honum,“ segir Ómar. Hann segist vonast til þess að framtak sitt liðki til við fjárlagaumræðuna og geri stjórnmálamönnum fært að bæta kjör allra.Helen Sjöfn Steinarsdóttir skrifaði greinarstúf í Fréttablaðið í morgun og óskaði þar eftir því að Sigmundur Davíð...Posted by Ómar R. Valdimarsson on Tuesday, December 15, 2015
Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Sjá meira