20,7 milljarða króna halli á vöruskiptum Sæunn Gísladóttir skrifar 30. nóvember 2015 09:56 Vöruskiptajöfnuðurinn var 16,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Vísir/GVA
Á fyrsti tíu mánuðum ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 527,0 milljarða króna en inn fyrir 547,7 milljarða króna fob (584,6 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 20,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Þessu greinir Hagstofan frá. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagsæð um 3,9 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 50,9 milljarða króna fob (54,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 4,0 milljarða króna. Í október 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 11,4 milljarða króna á gengi hvors árs. Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 35,9 milljörðum eða 7,3% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Á móti dróst útflutningur á heilfrystum fiski saman. Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 52,7 milljörðum eða 10,7% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.
Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira