Viðskipti innlent

131 missir vinnuna hjá Airport Associates

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, sem þjónustar flugvélar á Keflavíkurflugvelli.
Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates, sem þjónustar flugvélar á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm

Airport Associates, sem veitir flugafgreiðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli, sagði upp 131 starfsmanni í dag. 53 starfsmenn eru eftir hjá fyrirtækinu og segir forstjórinn að fyrirtækið þurfi áfram að afgreiða flugvélar þótt umferð sé mjög lítil.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að til aðgerðanna sé gripið vegna áhrifa af Covid-19 heimsfaraldrinum sem hefur haft þau áhrif að nær öll flugumferð í heiminum hefur stöðvast og óvíst hvenær flugsamgöngur komast í samt lag.

Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri fyrirtækisins, segir verkefni nú aðallega snúa að fraktflugvélum auk reksturs skrifstofu þar sem unnar eru hleðsluskár fyrir flugfélögin svo eitthvað sé nefnt. Þá geti komið vélar í millilendingu þótt þær séu ekki með farþega.

Óhætt er að segja að starfsöryggi hafi verið lítið undanfarin tvö ár hjá fyrirtækinu sem þjónustaði WOW air áður en fyrirtækið fór á hausinn. Þurfti fyrirtækið að ráðast í fjölmennar uppsagnir vegna erfiðleika WOW air sem lauk með gjaldþroti.

Sigþór segir starfsmenn vera með þriggja mánaða uppsagnarfrest og mæti áfram til vinnu næstu mánuðina. Hann er sannfærður um að fyrirtækið komist í gegnum þennan skafl. Það byggi á sterkum stoðum og hafi verið lengi í rekstri.

Þá muni verulega um aðstoð ríkisins en stjórnvöld greiða 85 prósent af launum á uppsagnarfrestinum eins og kynnt var á blaðamannafundi á þriðjudaginn.

Airport Associates þjónustar um tuttugu flugfélög á Keflavíkurflugvelli. Meðal viðskiptavina eru easyJet, Wizz Air, Delta Airlines, Bluebird, Nordic, British Airways, Norwegian, American Airlines og Air Canada, Neos, Jet2.com, Tui, S7, Air Baltic, Vueling og Transavia.

Fyrirtækið harmar að þurfa að grípa til svo róttækra aðgerða en vonast til að geta endurráðið í störfin svo fljótt sem kostur er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×