Lífið

Koma heim yfir jólin

Myndir/Steed Lord
Hljómsveitin Steed Lord verður með tónleika á Íslandi laugardaginn 1. desember næstkomandi á Gamla Gauknum ásamt hljómsveitinni Legend. Lífið heyrði í Svölu Björgvinsdóttur, söngkonu, og spurði hana hvar hún heldur upp á jólin í ár.

„Við verðum á Íslandi yfir jólin í fyrsta skipti í tvö ár. Við höfum verið í LA yfir tvö seinustu jól," segir Svala.

Hvernig eru jólin í Los Angeles samanborið við hér heima? „Jólin í L.A. eru rosa róleg. Það er allt opið því það eru svo margir sem búa í borginni sem halda ekki upp á jólin þannig að maður getur farið á veitingahús og borðað góðan mat og kíkt síðan í bíó. Það er auðvitað bara gott veður í L.A. um jólin og það er ekkert svakalega jólalegt að hafa átján stiga hita þegar það eru jól. Seinustu tvö jólin okkar hérna í L.A. voru yndisleg. Við fórum á æðislegan ítalskan fjölskyldu veitingastað og borðuðum þar bæði skiptin og tókum með okkur pakka."

Hlakkar til að koma heim „Ég hlakka mikið til að koma til Íslands og vera í alveg fjórar vikur. Ég hef ekki komið í svona langa heimsókn heim síðan ég flutti erlendis fyrir meira en þremur árum síðan. Við Steed Lord erum með tónleikana okkar með Legend þann 1. desember á Gamla Gauknum og svo er ég líka að syngja á jólatónleikum hans pabba í Höllinni þann 15. desember. Þannig að það er um að gera að tryggja sér miða á báða tónleika því þetta verður meiriháttar tónlistarveisla."

Myndir/Steed Lord
Hvetur fólk til að koma á Gaukinn „Miðasala er hafin og um að gera að næla sér í miða áður en verður uppselt við getum lofað ykkur því að þetta verður svaka stuð partí sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Okkur hlakkar mikið til að spila nýja „showið" okkar fyrir ykkur," segir Svala að lokum.

Hér má nálgast miða á tónleikana (midi.is).

Heimasíða Steed Lord.

Steed Lord heldur jólin á Íslandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×