Funda á morgun og ákveða næstu skref vegna úrskurðar ESA 29. júní 2011 18:42
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, úrskurðaði í dag að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt við EES samninginn með því að veita fjármálastofnunum ólögmæta ríkisaðstoð. Í hruninu stóðu íslenskar fjármálastofnanir frammi fyrir lausafjárskorti og var því heimild í neyðarlögunum að Íbúðalánasjóður gæti keypt fasteignaveðlán af fjármálastofnunum. Um er að ræða lánasöfn að upphæð 29 milljarðar sem sjóðurinn keypti af fjórum sparisjóðum, en þeir eru í dag allir í slitameðferð. ESA telur ólíklegt að aðili á markaði myndi hafa keypt lánasöfnin með þessum hætti og því gæti kerfið falið í sér ríkisaðstoð til fjármálastofnana. Eftir að ESA tók málið til skoðunar hefur Íbúðalánasjóður sent ESA öll umbeðin gögn um málið, þar á meðal ítarlegt verðmat á raunvirði lánasafnanna, unnið af óháðum aðila samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum. ESA fer fram á að íslensk yfirvöld leggi niður þetta kerfi án tafar og geri nauðsynlegar ráðstafanir til að, endurheimta þá aðstoð sem ekki samrýmist ákvæðum EES samningsins, eigi síðar en í lok október 2011. Íslensk stjórnvöld þurfa því nú að sýna að ekki var greitt yfirverð fyrir bréfin sem er þá ólögmæt ríkisaðstoð. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs munu funda með fulltrúum fjármálaráðuneytisins og velferðarráðuneytisins á morgun til að ákvarða næstu skref í málinu.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Fleiri fréttir „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Enginn skömm í að verða fyrir netsvikum Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Sjá meira