Draga þarf úr stuðningi við landbúnaðinn 29. júní 2011 18:55
OECD segir mikinn opinberan stuðning við landbúnaðinn allt í senn byrði á neytendum, skattgreiðendum og framleiðni í greininni. Formaður neytendasamtakanna kallar eftir því að farið sé að ráðum stofnunarinnar og tollar lækkaðir. Í nýjustu skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD er enn hnykkt á því að opinber stuðningur við landbúnað hér á landi er með því mesta sem gerist, og tvöfalt meiri en til dæmis innan Evrópusambandsins. „Þetta er bara sama sagan endurtekin, ár eftir ár," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna um boðskap skýrslunnar. „Við erum að styðja landbúnað hvað mest í öllum heiminum. Af OECD löndunum liggjum við langt yfir öllum öðrum. Þetta er bara staðfesting á gamalli landbúnaðarstefnu sem ríkt hefur hér í langan tíma." Stofnunin tekur saman svokallað tekjuígildi stuðnings til bænda. Þannig er reynt að áætla þær greiðslur sem bændur þyrftu að fá til að halda óbreyttum tekjum ef öllum stuðningi við greinina yrði hætt, en með opinberum stuðningi er allt í senn átt við beingreiðslur, styrki og innflutningsvernd.Ekki heilbrigt umhverfi Að því er segir í skýrslunni er tekjuígildið yfir 50%, sem merkir að bændur geta þakkað meirihluta tekna sinna þessum stuðningsaðgerðum, en ekki virði afurðanna sem þeir framleiða. Jóhannes segir að það sé ekki heilbrigt umhverfi fyrir atvinnugrein. „Það er til að mynda ekki heilbrigt fyrir eina atvinnugrein að vera vernduð þannig að lagður er ofurtollur á allt sem gæti kallast innfluttar vörur. Á mjólkurmarkaði hefur nánast verið komið á einokun, þar sem eitt fyrirtæki situr að markaðnum. Ég spyr, hversu mikið væri hægt að lækka verð til neytandans með því að lækka tolla? Ekki nóg með að innfluttu vörurnar yrðu ódýrari, heldur myndi það skapa þrýstingu á aukna hagræðingu í íslenskum landbúnaði. Mér sýnist ekki veita af."Bændur hafa mikil áhrif á stjórnkerfið og flokkana Jóhannes tekur þannig undir með tillögum OECD um að afnema tolla og innflutningshömlur á landbúnaðarafurðir. Í skýrslunni er sömuleiðis sagt að slíkt myndi leiða til hagkvæmari nýtingar aðfanga í landinu, meiri hagvaxtar og lægra matvælaverðs. En af hverju er ekki brugðist við gagnrýni af þessu tagi? „Það gæti verið vegna kjördæmaskipaninnar. Allavega er ljóst að bændur hafa gríðarlega mikil áhrif inn í stjórnkerfið og stjórnmálaflokkanna. Þeir hafa komið ár sinni vel fyrir borð á kostnað íslenskra neytenda," segir Jóhannes, og játar því að stjórnmálastéttin geri sig seka um sérhagsmunagæslu. „Að sjálfsögðu. Þarna er verið að gæta hagsmuna fárra á kostnað margra."
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Fleiri fréttir „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Enginn skömm í að verða fyrir netsvikum Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Sjá meira