Innlent

Ólögmæt ríkisaðstoð til fjármálastofnana á Íslandi

Íbúðalánasjóður hefur aðsetur í Höfðaborg, Borgartúni.
Íbúðalánasjóður hefur aðsetur í Höfðaborg, Borgartúni.
Eftirlitsstofnun EFTA tók í dag ákvörðun þess efnis að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána íbúðalánasjóðs feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð til fjármálastofanana á Íslandi.

Í fréttatilkynningu um málið á vef Eftirlitsstofnunarinnar segir að vegna mikilla raskana á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafi íslenskar fjármálastofnanir staðið frammi fyrir lausafjárskorti og hafi, til að mæta þeim vanda, meðal annars heimilað íbúðalánasjóði að kaupa fasteignaveðlán af fjármálastofnunum.

Eftir skilgreiningu Eftirlitsstofnunarinnar felur aðstoðarkerfi fasteignaveðlána í sér varanleg skipti á eignum þar sem fjármálastofnanir taka á móti skuldabréfum íbúðalánasjóðs í skiptum fyrir fasteignaveðlán sem eru yfirfærð til sjóðsins.

Þá segir í yfirlýsingunni:

Við þær aðstæður sem voru á fjármálamörkuðum í kjölfar fjármálakreppunar er ólíklegt að einkafjárfestir hefði tekið þátt í sambærilegum eignaskiptum. Niðurstaða ESA er því sú að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána gæti þar af leiðandi falið í sér ríkisaðstoð til fjármálastofnana. Að auki fellur aðstoðarkerfið ekki að leiðbeinandi reglum um ríkisaðstoð í tengslum við virðisrýrðar eignir, sem stofnunin innleiddi í kjölfar fjármálahrunsins.

Vegna þessa fer ESA fram á að íslensk yfirvöld leggi niður aðstoðarkerfi fasteignaveðlána án tafar og geri nauðsynlegar ráðstafanir til að endurheimta ósamrýmanlega aðstoð eigi síðar en í lok október 2011.

Einstaka styrkir sem hafa verið veittir vegna aðstoðarkerfisins geta hinsvegar samræmst áskilnaði EES samningsins uppfyllt þeir skilyrði sem sett eru í leiðbeinandi reglum í tengslum við virðisrýrðar eignir og þurfa þar af leiðandi ekki að vera endurheimtir. Í slíkum tilvikum þurfa íslensk stjórnvöld að leggja fram gögn sem sýna fram á að einstaka styrkir sem veittir hafa verið samkvæmt aðstoðarkerfinu hafi verið samrýmanlegir reglum um ríkisaðstoð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×