Kærir Fiskistofu fyrir átroðning í Arnarfirði 30. júní 2011 06:00 Arnarfjörðurinn er stór svo að menn eiga ekki að þurfa að „kássast upp á annarra manna jússur“ segir stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins.
Íslenska kalkþörungafélagið, sem hefur verksmiðju sína á Bíldudal, hefur kært Fiskistofu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins vegna þess að þeir veittu fyrirtækinu Fjarðarlaxi leyfi til að setja niður eldiskvíar framan við kalkþörunganámu sem kalkþörungafélagið hefur sérleyfi á. „Þeir hafa plantað kvíum fyrir framan svæðið þannig að það er ekki hægt að komast að því nema valda skemmdum á kvíum, ankerum og fóðurlögnum frá Fjarðarlaxi,“ segir Sigurður Helgason, stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins. „Í raun er þessi leyfisveiting Fiskistofu hreinn dónaskapur og yfirgangur í okkar garð. Arnarfjörðurinn er nú gríðarlega stór svo það ætti að vera hægt að veita þessi leyfi án þess að menn séu látnir kássast upp á annarra manna jússur. Þetta er bara eins og í villta vestrinu í gamla daga,“ segir hann. Hann segir enn fremur að algjört stjórnleysi ríki í þessum málum. „Það virðist enginn hafa neina heildarsýn þannig að ein stofnun veitir leyfi ofan á leyfi frá annarri stofnun,“ bætir hann við. Sjávar- og landbúnaðarráðuneytið tekur við stjórnsýslukærum af þessum toga og í framhaldinu biður það stofnunina sem kærð er um umsögn. Eyþór Björnsson fiskistofustjóri segir að enn hafi engin slík beiðni borist til Fiskistofu. Hann tekur hins vegar undir með Sigurði að úrbóta sé þörf í stjórnsýslunni í þessum efnum. „Það vantar hreinlega heildstæða strandsvæðastjórnun á Íslandi,“ segir hann. „Stofnanir eru að reyna að gera sitt besta í þessu til að mæta aukinni ásókn í nýtingu strandsvæðanna.“ Ekkert samráð var haft við Íslenska kalkþörungafélagið áður en leyfið var veitt. Hrefna Gísladóttir, forstöðumaður fiskveiðistjórnunarsviðs Fiskistofu, segir að ávallt sé óskað eftir umsögnum frá lögbundnum umsagnaraðilum og þeim sem augljóslega eigi hagsmuna að gæta áður en rekstrarleyfi sé veitt. Aðspurð hvort ekki hafi verið eðlilegra að leita til Íslenska kalkþörungafélagsins segir hún að Fiskistofu hafi ekki verið kunnugt um að félagið hafi verið með umsvif á þessu svæði. Sigurður segir að þessar námur séu ekki nýttar nú. „En við stólum á þær í framtíðinni,“ segir hann. Það er iðnaðarráðuneytið sem veitti sérleyfi á kalkþörunganámunni. Íslenska kalkþörungafélagið sendi kæruna inn í þar síðustu viku. jse@frettabladid.is
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Fleiri fréttir „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Enginn skömm í að verða fyrir netsvikum Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Sjá meira