Veiði

Opnað fyrir vorveiði í Ytri Rangá 1. maí

Karl Lúðvíksson skrifar
Ytri Rangá er ein aflahæsta laxveiðiá landsins og hefur verið um árabil en í henni er líka nokkuð af sjóbirting.

Það veiðist slangur af sjóbirting á hinum hefðbundna laxveiðitíma en besti tíminn fyrir sjóbirtinginn er engu að síður á vorin og haustin en hingað til hefur ekki verið opip fyrir vorveiði.  Nú verður breyting þar á og 1. maí verður opnað fyrir vorveiði í Ytri Rangá. Veiðisvæðið nær frá Árbæjarfossi og niður í sjó og á þessum svæði er fullt af flottum veiðistöðum þar sem sjóbirtingurinn liggur.  Aðeins verður veitt á fjórar stangir svo það er vel rúmt um allar stangirnar en 16 stangir veiða þetta svæði á laxveiðitímanum.

Það sem hefur reynst vel í Ytri Rangá, fyrir þá sem hafa ekki veitt hana, er að veiða hægt og djúpt.  Þá þarf að nota sökktauma og þyngdar flugur.  Þetta er skemmtileg nýjung í fjölbreytta flóru vorveiða á landinu.  Stangirnar fjórar eru seldar saman í hollum og fyrir þá sem vilja skoða þetta nánar geta haft samband við staðarhaldarann Jóhannes (johannes@westranga.is).  Það skal tekið fram að öllum fiski skal sleppt.

 






×