Lífið

Sjö ára stúlka brá sér í gervi Taylor Swift og sló í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Taylor Swift er ein vinsælasta söngkona heims og á hún margar milljónir aðdáenda.

Einn gríðarlega mikill aðdáandi Swift er hin sjö ára Xia Vigor sem kom fram í raunveruleikaþættinum Your Face Sounds Familiar á dögunum.

Þar má sjá ótrúlegan flutning Vigor þegar hún tekur lag með Taylor Swift en hún er klædd í virkilega flottan búning sem svipar mjög til poppstjörnunnar.

Hér að neðan má sjá frammistöðu sjö ára stúlku sem er að slá í gegn á veraldarvefnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×