Lífið

Spennan magnast: Hildur skellti sér í Chanel partý og bauð mömmu með

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hildur Guðnadóttir í hári og sminki til vinstri og móður sinni til hægri.
Hildur Guðnadóttir í hári og sminki til vinstri og móður sinni til hægri.

Óhætt er að segja að spennan sé að magnast á Íslandi fyrir Óskarsverðlaunaathöfninni í Hollywood í kvöld. Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir er tilnefnd fyrir tónlist sína í Jókernum en Hafnfirðingurinn hefur sópað til sín verðlaunum undanfarnar vikur fyrir tónlist sína.

Ekki minnkaði spennan meðal vina og ættingja Hildar og fjölskyldu eftir að Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir, móðir hennar, veitti fólki smá innsýn í aðdraganda verðlaunanna. Þær mæðgur skelltu sér nefnilega í Chanel partý á vesturströndinni í gær þar sem Hildur var í glæsilegum kjól frá franska tískuhúsinu.

„Hildur gæti verið í endalausum partýum en hún velur úr. Hún er auk þess skynsöm stúlkan mín og drekkur ekki áfengi,“ segir Ingveldur Guðrún stolt í færslu á Facebook þar sem hún lætur fylgja nokkrar stemmningsmyndir úr Hollywood.

Sjá einnig:Hollywood-tónskáldið úr Hafnarfirði

Greinilegt er að áreitið er mikið á íslensku tónlistarkonuna og móðir hennar dáist að henni.

„Fólk í þessari stöðu þarf á allri sinni orku að halda til þess að komast í gegnum þetta.“

Ingveldur Guðrún segist aðeins hafa tekið myndir fyrir partýið en látið vera að munda símann í veislunni sjálfri. Þar hefði hún aldeilis skorið sig úr segir Ingveldur og hlær. Má ætla að hún eigi við klæðaburð gesta þar sem hefur væntanlega verið íburðarmikill miðað við glæsilega kjólinn sem Hildur klæddist.

Af ummælum við færslu Ingveldar má sjá hve spennan er að magnast fyrir kvöldið. Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt og ljóst að margur Íslendingurinn ætlar að vaka fram eftir og fylgjast með því sem gæti orðið sögulegur viðburður.

Samkvæmt síðunni Oddschecker, þar sem teknir eru saman helstu stuðlar, hefur fólk í langflestum tilvikum veðjað á sigur Hildar. Samkvæmt síðunni eru líkurnar á því að verðlaunin falli í fyrsta sinn í skaut Íslendings hátt í áttatíu prósent.

Tónlistarfólk, blaðamenn, alls kyns listamenn, stjórnmálamenn og kvikmyndagerðarfólk er meðal þeirra sem senda sínar bestu kveðjur til mæðgnanna.

Fylgst verður með Óskarsverðlaunahátíðinni í beinni textalýsingu á Vísi í alla nótt.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.