Lífið

Katrín Halldóra og Hallgrímur eiga von á dreng

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín setti þessa fallegum mynd inn á Facebook-í gær.
Katrín setti þessa fallegum mynd inn á Facebook-í gær. vísir/facebooksíða Katrínar Halldóru.

Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á dreng í júní. Katrín Halldóra greindi frá þessu á tónleikum í Hörpu í gær.

Þar var hún á meðal gesta hjá Friðriki Ómari en á dagskrá voru öll bestu lög Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar sem hefði orðið 75 ára á árinu.

Katrín Halldóra skýrði í framhaldinu frá tíðindum á Facebook og ekki stendur á hamingjuóskunum. Þetta er fyrsta barn þeirra Katrínar Halldóru og Hallgríms Jóns.

Katrín Halldóra brá sér 220 sinnum í hlutverk Ellyjar Vilhjálms í söngleik um ævi hennar í Borgarleikhúsinu. Á tónleikunum í Hörpu í gær sagði hún vel mögulegt að sýningin yrði tekin upp aftur síðar enda þess eðlis. Hins vegar væri nú helst á döfinni að sinna unga manninum sem er væntanlegur í júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.