Lífið

„Gætum þurft að borga himin­háan þrifa­kostnað ef ein okkar missir leg­vatnið“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessar konur hafa slegið í gegn sem uppistandarar.
Þessar konur hafa slegið í gegn sem uppistandarar. mynd/Hlín Arngrímsdóttir

Uppistandshópurinn Fyndnustu mínar skaut fyrst upp kollinum árið 2018 og fjallar um veruleika ungra kvenna árið 2020. Undanfarin tvö ár hafa þær staðið fyrir reglulegum uppistandskvöldum á hinum ýmsu stöðum og selt upp á sýningar í Þjóðleikhússkjallaranum, Hard Rock og Tjarnarbíói.

Nú er komið að næstu sýningarröð en næstkomandi laugardag frumsýna þær sýninguna Bestu Mínar á jarðhæð Kex, oft kallað Gamla Nýló. Um leið slá þær til heljarinnar veislu en DJ Mellí heldur uppi stuðinu fyrir og eftir sýningu.

Hópurinn samanstendur af Lóu Björk Björnsdóttur, Rebeccu Scott Lord og Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur. Sú síðastnefnda er nýjasti meðlimur hópsins og fyllir upp í skarðið fyrir Sölku Gullbrá Þórarinsdóttur, sem er í tímabundnu þungunarleyfi frá uppistandi.

Síminn stoppar ekki

„Það er náttúrulega ekkert grín að vera ólétt svo hún tók ákvörðun um að setjast á bekkinn um stundarsakir og hvíla sig fyrir komandi átök,“ segir Hekla Elísabet.

„Við gætum þurft að borga himinháan þrifakostnað ef ein okkar missir legvatnið á sviðinu þannig að ég er hæstánægð með þetta fyrirkomulag“.

Vinsældir hópsins hafa farið ört vaxandi og hafa þær verið að troða upp á hinum ýmsu viðburðum, fyrirtækjaskemmtunum og í skólum upp á síðkastið.

„Síminn stoppar ekki, ég þurfti að hætta á Instagram til að fá smá frið,“ segir Lóa Björk, fjölmiðla- og sviðslistakona.

„Enda leggjum við mikinn metnað í það sem við gerum og stefnum á algjöra yfirtöku á þessu sviði,“ bætir hún við en hægt er að kaupa miða á sýningar þeirra á tix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.