Það var í lok annarrar viku tilraunar sem taugarnar voru orðnar þandar hjá Önnsku og Úlfi, eiginmanni hennar sem rekur Hamraborg á Ísafirði. Þau hjónin hafa vakið athygli fyrir lífsgleði og smitandi hlátur en þegar komið var fram í miðja vegantilraun með tilheyrandi átökum við að næra synina og langvarandi hungurtilfinningu hjá þeim sjálfum fór að sjóða upp úr.
„Ég veit ekki hvað þetta er,“ segir Úlfur hissa á sjálfum sér, „hvort þetta er svengdin eða hvað. Maður er alltaf svangur. Það tekur á.“
Myndbrot úr fjórða þætti sem hér fylgir sýnir dæmi af hungurgeðvonsku þeirra hjóna.
Fjórði þáttur af „Kjötætur óskast! Vegan með Lóu Pind“ er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 19:15. Í þessari fimm þátta seríu fylgist Lóa með fjórum íslenskum fjölskyldum sem féllust á að taka þátt í fjögurra vikna vegan tilraun.
Í þætti kvöldsins er hópurinn kominn á þriðju viku tilraunar og takast fjölskyldurnar á við ýmsar nýjar áskoranir. Hlédís Sveinsdóttir heldur vegansaumaklúbb fyrir kjötætur og Sigurður Leifsson og Sigríður Dóra Kristjánsdóttir halda matarboð fyrir veiðimenn.
Í þættinum kemur vísindatvíeyki EFLU svo fram og upplýsir þátttakendur um hvernig hefur gengið að minnka kolefnissporið þessar fyrstu 2 vikur. Allar fjölskyldurnar skráðu mataræði sitt inn í Matarspor EFLU á meðan á tilraun stóð. Auk þess var tekin ein samanburðarvika frá því fyrir tilraun, til að kanna hvort kolefnisspor fjölskyldnanna minnkar við að sneiða hjá öllum dýraafurðum.