Endar iðulega í viðtölum við áhugavert fólk Rakel Sveinsdóttir skrifar 6. febrúar 2021 10:00 Tinni Jóhannesson. Vísir/Vilhelm Tinni Jóhannesson ráðningastjóri og ráðgjafi hjá Góðum samskiptum finnst gott að taka daginn snemma en það er þriggja mánaða dóttirin sem stýrir því einna helst, hvenær hann fer síðan að sofa á kvöldin. Honum finnst best að nota morgnana eða síðdegin til að skipuleggja verkefni í vinnunni en lýsir í kaffispjallinu hvernig honum fyndist fullkomin helgi vera, nú á tímum Covid.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Yfirleitt vakna ég um klukkan sex eða sjö, finnst gott að byrja daginn snemma.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Það fyrsta sem ég geri á morgnana er að fá mér kaffibolla sem ég drekk yfir lestri frétta, þá helst fréttir um atvinnulífið, viðskipti eða fótbolta. Því næst tekur við rútínan, vekja þá eldri og koma henni í skólann. Morgnarnir í vinnunni eru svo yfirleitt rólegir til svona níu en þá tekur þétt dagskrá við og lægir oftast ekki fyrr en milli fjögur og fimm, enda finnst mér best að hafa nóg að gera. Einn morgun í viku tek ég stutt útihlaup að morgni en útihlaup og golf eru mínar leiðir til að núllstilla og jarðtengja.“ Hvernig myndir þú lýsa fullkominni helgi á tímum Covid? „Fullkominn dagur um helgi er þannig að ég vakna snemma til að ná smá einveru þar sem ég ligg í alls konar grúski á meðan ég fæ mér kaffibolla. Í grúskinu byrja ég oft á fréttum en enda iðulega í greinum eða viðtölum við áhugavert fólk. Þegar fjölskyldan er komin á fætur tekur við dýrindis morgunverður sem fylgir innihaldsríku spjalli við konuna og dæturnar tvær. Þegar kaffið og veitingarnar eru frágengnar þá tekur við dagskrá með fjölskyldunni, svo sem útivera eða önnur skemmtileg verkefni, en mér finnst fátt skemmtilegra en þéttur listi af verkefnum. Ef tími gefst þá eru spilaðar níu eða átján holur á golfvellinum eða tíu kílómetrar hlaupnir á ,,spjallhraða” með konunni. Dagurinn endar svo á eðal kvöldmat sem fylgir spilakvöldi með fjölskyldunni.“ Tinni nær að núllstilla sig og jarðtengja í útihlaupi eða í golfi.Vísir/Vilhelm Hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Flest mín verkefni í dag eru á sviði stjórnendaleitar og ráðninga ásamt ráðgjöf til stjórnenda vegna breytingaverkefna og bættrar stjórnunar. Það sem sameinar öll þessi verkefni er ráðgjöf tengd mannlegri hegðun og aðstoð til stjórnenda við leit lausna á áskorunum sem þeir standa frammi fyrir. Með hverjum ég er að vinna þessa dagana er trúnaðarmál en ég get sagt að á meðal verkefna sem kláruðust nýlega voru aðstoð við ráðningu fjármálastjóra fyrir fiskeldisfélag og ráðning tæknistjóra fyrir verslunarkeðju. Í ráðgjöfinni var ég nýverið að aðstoða stjórnanda í frammistöðumati og öðru þar sem unnið var að því að styðja stjórnanda að bættri stjórnun starfsfólks í fjarvinnu. Þegar tími gefst fyrir innri verkefni þá vinn ég að hlaðvarpi fyrirtækisins, Ræðum það.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég nota hugbúnað til að aðstoða og auðvelda mér skipulagið en hraðinn og umfang verkefna krefjast þess að þétt sé haldið á spöðunum. Ég er stöðugt í samskipum við fólk, hvort sem um er að ræða viðskiptavini eða öflug fólk í atvinnulífinu, þannig að gott skipulag skiptir sköpum á þétt bókuðum dögum. Við notum Asana í verkefnavinnu sem hentar vel til að útbúa „To-do” lista sem hægt er hlekkja á allt teymið, Við bókun funda nota ég Calendly. Morgnarnir eða lok hvers dags fara oft í skipulagið þar sem það er oftar enn ekki besti tíminn í slíka vinnu. Þegar ég er í hringiðunni þá er ég svo heppinn að hafa mjög gott teymi með mér til að aðstoða við skipulagningu ýmissa verkefna. Skipulagshæfileikarnir eru áunnir og þarf ég því að nýta tæknina og skýran ramma.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Yfirleitt er það á milli klukkan ellefu og miðnættis. Það fer svolítið eftir þriggja mánaða gōmlu dóttur minni, nýjasta meðlimi fjölskyldunnar.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Kisurnar „sofa annað hvort ofan á mér eða límdar upp við mig“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, byrjar daginn á því að klappa kisunum sínum. Hún segir eiginmanninn sofa í gegnum fyrri hluta morgunrútínunnar en vakna við ófriðinn þegar hún fer að hafa sig til. Svanhildur segist mikil listakona í skipulagi og á það til að detta í einhver ofurgír á kvöldin. 30. janúar 2021 10:01 „Koddahugmyndirnar“ í rúminu misgóðar daginn eftir Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segist oftast fljótur að sofna á kvöldin. Stundum poppa þó upp svo góðar hugmyndir fyrir viðskiptavini að hann glaðvaknar. Þessar „koddahugmyndir“ reynast þó misgóðar daginn eftir þegar mætt er til vinnu. Í golfinu vinnur Guðmundur markvisst af því að ná forgjöfinni niður fyrir tíu. 23. janúar 2021 10:00 100 konur á „Kvenndalshnúk“ í maí Snjódrífurnar vöktu athygli landsmanna þegar þær gengu Vatnajökul í fyrra og söfnuðu pening fyrir Líf og kraft. Í vor stefna 100 konur á Hvanndalshnúk, eða „Kvenndalshnúk“ eins og hann er kallaður af hópnum þar sem aftur verður safnað til góðgerðarmála. 16. janúar 2021 10:00 Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. 9. janúar 2021 10:00 Fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið Hildur Árnadóttir stjórnarmaður og ráðgjafi fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið á morgnana. Hún segir aðventuna frekar rólega í ár vegna Covid en í vinnunni tókst í vikunni að undirrita samkomulag um sameiningu félaga þannig að úr verður eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Markmið sameiningarinnar er að vera tilbúin þegar öflug viðspyrna hefst og ferðamenn fara að flykkjast til landsins á ný. 19. desember 2020 10:00 Mest lesið Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar „Ég spyr: Er í lagi að grípa í rass og þukla á brjóstum?“ Sterkasti fasteignasali landsins: Að verða pabbi breytti öllu „Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“ Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir „Ég var alveg ákveðin í því að verða bankakona“ Fer í pyntingar með eiginkonunni tvo morgna í viku Bryndís tekur við af Dagmar hjá Austurbrú Ekki brenna út á aðventunni „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn Sjá meira
Kisurnar „sofa annað hvort ofan á mér eða límdar upp við mig“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, byrjar daginn á því að klappa kisunum sínum. Hún segir eiginmanninn sofa í gegnum fyrri hluta morgunrútínunnar en vakna við ófriðinn þegar hún fer að hafa sig til. Svanhildur segist mikil listakona í skipulagi og á það til að detta í einhver ofurgír á kvöldin. 30. janúar 2021 10:01
„Koddahugmyndirnar“ í rúminu misgóðar daginn eftir Guðmundur Pálsson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segist oftast fljótur að sofna á kvöldin. Stundum poppa þó upp svo góðar hugmyndir fyrir viðskiptavini að hann glaðvaknar. Þessar „koddahugmyndir“ reynast þó misgóðar daginn eftir þegar mætt er til vinnu. Í golfinu vinnur Guðmundur markvisst af því að ná forgjöfinni niður fyrir tíu. 23. janúar 2021 10:00
100 konur á „Kvenndalshnúk“ í maí Snjódrífurnar vöktu athygli landsmanna þegar þær gengu Vatnajökul í fyrra og söfnuðu pening fyrir Líf og kraft. Í vor stefna 100 konur á Hvanndalshnúk, eða „Kvenndalshnúk“ eins og hann er kallaður af hópnum þar sem aftur verður safnað til góðgerðarmála. 16. janúar 2021 10:00
Átakanlegar stundir fylgja starfinu í Farsóttarhúsinu Síðustu vikur höfum við séð Gylfa Þór Þórsteinsson reglulega í fréttum, enda sinnir hann nú því starfi að vera umsjónarmaður Farsóttarhúsa. Gylfi segist í raun aldrei vita hvað bíður hans í vinnunni. Starfið er samt gefandi og í raun það skemmtilegasta sem Gylfi hefur sinnt til þessa. Hins vegar fylgja því einnig átakanlegar stundir. Til dæmis þegar hann þurfti að fylgja konu að kveðja unnusta sinn í síðasta sinn. 9. janúar 2021 10:00
Fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið Hildur Árnadóttir stjórnarmaður og ráðgjafi fær sér stundum Coco Puffs í desert eftir Cheeriosið á morgnana. Hún segir aðventuna frekar rólega í ár vegna Covid en í vinnunni tókst í vikunni að undirrita samkomulag um sameiningu félaga þannig að úr verður eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Markmið sameiningarinnar er að vera tilbúin þegar öflug viðspyrna hefst og ferðamenn fara að flykkjast til landsins á ný. 19. desember 2020 10:00