Leikjavísir

Mánudagsstreymið: Berjast við hryðjuverkamenn og bjarga deginum

Samúel Karl Ólason skrifar
GTV Rainbow

Strákarnir í GameTíví ætla að reyna fyrir sér í sérsveita/hryðjuverkabransanum í kvöld og spila leikinn Rainbow Six Siege í mánudagsstreyminu. 

Rainbow Six Siege er netleikur þar sem sérsveitarmenn og hryðjuverkamenn berjast sín á milli. Þar reynir á skipulag, taktík og rökfasta hugsun, en samkvæmt strákunum sjálfum eru það allt kostir sem þá skortir.

Gamanið hefst klukkan átta á Stöð 2 eSport, Twitchrás GameTíví og Vísi. Hægt er að horfa hér að neðan.

Í mánudagsstreymi GameTíví reynir á skipulag, taktík og rökfasta hugsun... Allt sem GameTíví teymið skortir......

Posted by GameTíví on Monday, 8 February 2021





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.