Sport

Serena spennt fyrir viður­eigninni gegn Osaka í undan­úr­slitum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Serena hefur spilað vel í Ástralíu.
Serena hefur spilað vel í Ástralíu. EPA-EFE/DAVE HUNT

Segja má að drottningin og prinsessan mætist í undanúrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis á fimmtudag, þann 18. febrúar, þegar Serena Williams og hin 23 ára gamla Naomi Osaka mætast. Serena er mjög spennt fyrir einvíginu.

Þær Serena og Osaka mættust í úrslitum Opna bandaríska meistaramótsins árið 2018 þar sem Osaka kom öllum á óvart og vann glæstan sigur. Sigur Osaka féll í skuggann af því þegar Williams lét Carlos Ramos dómara heyra það eftir það sem var að hennar mati slæmur dómur.

Serena bað Osaka afsökunar í kjölfarið þar sem fréttamiðlar fjölluðu í raun meira um það heldur en sigur Osaka. Hún fyrirgaf Serenu þó auðveldlega enda má segja að Williams hafi verið átrúnaðargoð Osaka frá unga aldri. 

Kominn tími á sigur

Hin 39 ára gamla Serena Williams er komin í undanúrslit í Ástralíu í fyrsta skipti síðan hún vann mótið 2017, þá ólétt. Síðan hún eignaðist dóttur sína, Alexis Olympia Ohanian Junior, hefur hún fjórum sinnum komist í úrslit á risamótum en alltaf beðið ósigur. Henni líður hins vegar vel fyrir komandi undanúrslitaleik.

„Mér líður vel. Ég hef haldið dampi, sem var augljóslega markmiðið. Ég á eftir að mæta mögnuðum mótherja svo það væri gaman ef ég held áfram að bæta leik minn. Ég verð að gera það. Ég er komin í undanúrslit sem er nokkuð magnað svo það er spennandi,“ sagði Serena eftir að hafa unnið Simona Halep í síðustu umferð.

Halep, sem vann Serenu í úrslitum á Wimbledon 2019, hrósaði mótherja sínum og sagði hana hafa spilað frábærlega.

Það verður því spennandi að sjá hvað gerist á fimmtudag þegar tennis drottningin mætir tennis prinsessunni, þegar aðdáandinn mætir átrúnaðargoðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×