USA Today fékk þrjá rannsóknarmenn á vettvangi bílslysa til að skoða bílslysið sem kylfingurinn Tiger Woods lenti í fyrir sex dögum síðan eða á þriðjudaginn í síðustu viku.
Tiger fótbrotnaði illa á hægri fæti í slysinu en virðist að öðru leyti hafa sloppið ótrúlega vel út þessum slæma árekstri.
Samkvæmt ítarlegri skoðun á þeim staðreyndum sem liggja fyrir þá bendir ferðalag bílsins til þess að ökumaðurinn hafi ekki verið að fylgjast með veginum.
Available evidence from Tiger Woods' car crash indicates he was not paying attention to the road and drifted off of it before crashing his car, according to three forensic car accident experts. https://t.co/0DRZQlc45t
— USA TODAY Sports (@usatodaysports) February 28, 2021
Sérfræðingarnir segja að þetta sé dæmigert fyrir slys þar sem ökumaðurinn sofnar undir stýri.
Slysið varð klukkan sjö um morguninn og enginn annar bíll kom nálægt því þegar bíll Tigers endaði utan vegar.
Samkvæmt upplýsingum frá vettvangi þá hélt bíll Tigers beint áfram þegar vegurinn beygði til hægri og þá sáust engin bremsumerki á veginum eftir bílinn.
Bíll Tigers fór yfir svæðið sem var á milli akreinanna, fór út af veginum hinum megin, lenti á tré og velti síðan.
Ástæðan fyrir öllum brotunum á hægri fæti Tigers telja sérfræðingarnir vera sú að hann hafi verið að reyna að bremsa með hægri fæti sínum. Hann hafi hins vegar byrjað að bremsa mjög seint.