Á Framhaldsskólaleikunum er keppt í þremur leikjum; Counter-Strike, Rocket League og FIFA. Fjórtán skólar eru skráðir til keppni og er þeim skipt í tvo riðla í hverjum leik. Tvö lið komast upp úr hvorum riðli og spila um sæti, og fást 10 stig fyrir efsta sætið í hverjum tölvuleikjanna þriggja, átta stig fyrir 2. sætið, og svo færri stig eftir því sem lið enda neðar.
Mest geta fulltrúar skólanna því fengið 30 stig, eða reyndar 35 stig ef þeir klára fimm samfélagsmiðlaáskoranir sem fela í sér heilbrigðan lífsstíl. Fjórir efstu skólarnir í heildarstigatöflunni komast í undanúrslit og bítast um meistaratitilinn.
Í kvöld eru eins og fyrr segir fjórir leikir á dagskrá í Rocket League og verðar þeir í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Í Rocket League er keppni skammt á veg komin en MH, Kvennaskólinn og Tækniskólinn hafa þó unnið tvo leiki hvert.
Leikir kvöldsins:
Framhaldsskólinn á Laugum – Menntaskólinn á Tröllaskaga
Kvennaskólinn í Reykjavík – Tækniskólinn
Menntaskólinn í Reykjavík – Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn á Ásbrú – Verzlunarskóli Íslands
Hægt er að horfa á útsendingu kvöldsins í spilaranum hér fyrir neðan:
Keppni í Counter-Strike er lengra komin en þar eru Flensborg, Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands enn með fullt hús stiga. Versló og Borgarholtsskóli mættust í magnaðri viðureign í síðustu viku, í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport.