Sport

Katrín Tanja er að leita að bakinu sínu eftir 21.2 en Anníe Mist gaf góð ráð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir reyndi að liðka sig eftir erfiða æfingu í öðrum hluta Open.
Katrín Tanja Davíðsdóttir reyndi að liðka sig eftir erfiða æfingu í öðrum hluta Open. Instagram/@katrintanja

Annar hluti á The Open reyndi mikið á bak keppenda og það er ljóst að CrossFit fólk heimsins var örugglega með alvöru eymsli í bakinu eftir að hafa reynt sig við 21.2.

Íslensku CrossFit konurnar Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir fundu líka vel fyrir aumum bakvöðvum eftir að hafa farið í gegnum 21.2.

21.2 æfingin snerist um margar endurtekningar af því að lyfta handlóðum upp fyrir haus og taka síðan „burpee“ hopp upp á kassa og yfir hinum megin.

Katrín Tanja sló á létta strengi í sinni færslu en Anníe Mist er að venju að hugsa um sína fylgjendur og gaf þeim réttu ráðin til að hraða endurheimt í súrum og aumum vöðvum í bakinu.

„Alvarleg spurning. Hefur einhver séð balið mitt eftir 21.2 Sá það síðast á föstudaginn. Ætla bara að hanga hérna í smá stund og hugsa um þetta,“ skrifaði Katrín Tanja í sinni færslu sem sjá má hér fyrir ofan.

Hér fyrir neðan má sjá hvað Anníe Mist Þórisdóttir ráðleggur fólki að gera sem fór í gegnum 21.2 um helgina. Hún sést þar skrapa bakvöðvana á Tönju Davíðsdóttur sem er ein af bestu CrossFit konunum hér heima á Íslandi.

Anníe Mist ráðleggur fólki að reyna að auka blóðflæðið í aumum vöðvum með því að skrapa þá eins og sést hér fyrir neðan.

„Ég varð alveg eins aum í ár eins og eftir þegar þessi æfinga kom árið 2017. Hér er gott ráð til að líða betur í bakinu og ná sér nógu góðum til að endurtaka 21.2 og ná betri tíma,“ sagði Anníe Mist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×