Lífið

Dagbladet fjallar um Blindan bakstur Evu Laufeyjar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tobba Marinós sprakk úr hlátri þegar kökurnar voru sýndar í fyrsta sinn. 
Tobba Marinós sprakk úr hlátri þegar kökurnar voru sýndar í fyrsta sinn. 

Blindur bakstur er skemmtilegur þáttur á Stöð 2 á laugardagskvöldum.

Þar mæta tveir keppendur sem eiga að fara eftir leiðbeiningum Evu Laufeyjar og baka köku með hennar fyrirmælum.

Tveir þættir hafa farið í loftið og hafa þeir vakið mikla athygli hér á landi en einnig í Noregi.

Dagbladet fjallar um þættina á vefsíðu sinni og birtir þar myndbrot úr þessum stórskemmtilegu þáttum. Þar má sjá frægt hláturskast Tobbu Marinós.

Hér að neðan má sjá umrætt atriði.


Tengdar fréttir

„Eruð þið bara á einhverju stefnumóti hérna?“

Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn kepptu í öðrum þætti af Blindum Bakstri sem sýndur var um helgina. „Ég er að keppa við þig, þessi var helvíti góður. Ég er ekki að fara að hjálpa þér,“ sagði Auðunn þegar Hjálmar spurði hvernig hann ætti að kveikja á vigtinni.

Fyrsta íslenska baksturskeppnin fer í loftið á Stöð 2

„Við höfum verið með hugmynd að kökuþætti í langan tíma og löngu tímabært að fá íslenska kökukeppni í loftið. Það eru svo margir skemmtilegir baksturs- og kökuþættir erlendis og því fannst mér alveg tilvalið að fara af stað með þetta hér á landi,“ segir Eva Laufey í samtali við Vísi.

Fengu hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar

Fyrsti þátturinn af Blindur Bakstur var sýndur um helgina á Stöð 2 en um er að ræða nýja keppni í kökubakstri. Þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran fékk þær Tobbu Marínós og Júlíönnu Söru til þess að baka „red velvet“ köku og var útkoman virkilega skemmtileg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.