Lífið

Hellir súkkulaði yfir allt borðið og ætum blómum yfir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Áslaug Snorradóttir kann heldur betur að halda veislur.
Áslaug Snorradóttir kann heldur betur að halda veislur.

Vala Matt hitti Áslaugu Snorradóttur í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi og fékk hún að sjá hvernig maður gerir litla fámenna veislu að algjöru ævintýri.

Þar kom meðal annars fram að hægt sé að hella bræddu súkkulaði yfir allt borðið og skreyta með ýmsu girnilegu og svo ætum blómum.

Ljósmyndarinn og listakonan Áslaug Snorradóttir er líklega einn flottasti matarstílisti landsins og þó víðar væri leitað.

Hún hefur ljósmyndað og skreytt fyrir bækur og sjónvarp og alltaf slegið í gegn með óvenjulega mikilli litadýrð og frumleika.

Vala fékk til að mynda að sjá uppskrift að súkkulaðinu sem hún hellir hreinlega beint á borðið og skreytir svo og Vala skoðaði einnig mjög skrýtnar skreytingar hennar með risa hrúgu af lakkrís og skærum til að klippa af honum reimar og kókosbollum um allt.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.