Heitir í höfuðið á bryta Batmans Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. maí 2021 07:01 Starfsfólk Alfreðs á Íslandi, fv.: Gunnar Bjarki Björnsson, Guðrún Magnúsdóttir, Kolfinna Jónsdóttir, Erwin Szudrawski og Halldór Friðrik Þorsteinsson. Vísir/Vilhelm Halldór Friðrik Þorsteinsson, framkvæmdastjóri og einn eigandi ráðningaappsins Alfreðs, segir appið Alfreð heita í höfuðið á bryta Batmans. Alfreð fagnar átta ára afmæli sínu á þessu ári og er í dag í boði fyrir atvinnuleitendur og vinnuveitendur á Íslandi, í Tékklandi, Slóvakíu og á Möltu. Og enn er hugað að fleiri og stærri tækifærum fyrir þetta íslenska app. „Stafrænar lausnir eiga mjög auðvelt með að ferðast og þess vegna er freistandi að horfa út yfir túngarðinn,“ segir Halldór.
Alfreð er eitt þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem stofnað var áratuginn eftir bankahrun. Stofnendur Alfreðs eru Halldór Friðrik Þorsteinsson, Helgi Pjetur, Hreinn Gústavsson og Vernharður Reynir Sigurðsson. Í dag eru eigendur Halldór, Vernharður og lykilstarfsfólk. Flestir sáu auglýsinguna á Vísi Að sögn Vernharðs var það í raun tilviljun að ráðninga-appið Alfreð varð til. Aðdragandann má rekja til þess þegar að stofnendur stóðu sjálfir í ráðningaferli árið 2012 og þá fyrir hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, sem í dag er systurfélag Alfreðs ehf. „Stokki vantaði starfsfólk á þeim tíma og við auglýstum eftir því í Fréttablaðinu og á vísir.is. sem á þeim tíma var eitt og sama fyrirtækið. Þegar kom svo að atvinnuviðtölum þá kom í ljós að flestir umsækjenda höfðu séð auglýsinguna á Vísi,“ segir Vernharður og bætir við: Þetta olli því að næst þegar okkur vantaði fólk þá óskuðum við eftir því að auglýsingin yrði bara birt á Vísi og ætluðum með því að spara okkur blaðaauglýsinguna. Nema hvað að þá okkur var sagt að það væri ekki mögulegt. Það fannst okkur skrýtið svar, fékk okkur til að hugsa um nýjar og ósvaraðar þarfir á atvinnumarkaðnum og allt í einu var teningunum kastað.“ Eftir það gerðust hlutirnir hratt. „Appið leit dagsins ljós fimm vikum síðar, 29. janúar 2013 og var skírt Alfreð í höfuðið á bryta Batmans, enda ætlað að veita notendum sínum framúrskarandi þjónustu,“ segir Halldór. Halldór segir nafnið Alfreð eiga vel við því hlutverk bryta Batmans fólst í að þjóna, rétt eins og gildir um appið Alfreð.Vísir/Vilhelm Útrásin hefst Aðeins tveimur árum síðar, hófst útrás Alfreðs. Í raun má segja að sú útrás hafi einnig hafist af tilviljun. „Við höfðum haft tékkneskan forritara í tímabundinni vinnu á Íslandi og þegar hann sneri heim þá ákváðum við að bjóða honum áframhaldandi vinnu og settum á laggirnar útibú Stokks í Prag,“ segir Vernharður. Árið 2017 flutti Vernharður búferlum til Prag með það fyrir augum að spinna útrásarþráðinn áfram. Tveimur árum síðar fór Alfreð í loftið í Tékklandi og Slóvakíu undir nafni Alfred Jobs. „Það er mikill stærðarmunur á Íslandi og Tékklandi og við höfum verið að læra á markaðinn og safna dýrmætum mistökum sem er gott veganesti,“ segir Halldór. Nýverið keypti Íslendingur sérleyfi Alfreðs fyrir Möltu, en Ísland og Malta hafa lengi verið sagðir mjög sambærilegir markaðir. Halldór og Vernharður segja að það verði mjög áhugavert að sjá hvernig Alfreð mun spjara sig á Möltu. Þá segja þeir að þróun Alfreðs síðastliðin ár, hafa tekið mið af því að appið nýtist fleiri mörkuðum. „Þróunin undanfarin ár hefur miðast við að gera Alfreð-kerfið skalanlegt til að geta selt kerfið á aðra markaði og nú hillir undir fyrsta sérleyfismarkaðinn þegar Alfreð fer í loftið á Möltu í lok þessa mánaðar,“ segir Vernharður. Í vetur var Alfreð eitt þeirra íslensku vörumerkja sem vann til verðlaunanna „Bestu vörumerkin 2020.“ „Vel hugsað vörumerki er grunnur að góðu fyrirtæki, því bæði hefur gott vörumerki aðdráttarafl og í því speglast gildi þess og tilgangur,“ segir Halldór sem jafnframt bætir því við að á þeim átta árum sem Alfreð hefur starfað, hefur lærdómurinn reynst þeim mikill og verðmætur. „Í appþróun er notendaviðmótið mjög mikilvægt. Það skiptir máli að hafa fjölbreytta hæfni starfsfólks, góður árangur er sjaldnast eitthvað eitt heldur margt í bland,“ segir Halldór og bætir við: „Og síðast en ekki síst þá skiptir skipulag fyrirtækisins máli. Góðir stjórnarhættir tryggja aðhald og skipulag sem er nauðsynleg umgjörð, eigi sköpunargleði og nýsköpun að fá notið sín til lengri tíma.“ Halldór segir þó mikilvægt að gera ekki ráð fyrir að velgengni Alfreðs verði auðveldlega jafn mikil alls staðar annars staðar. Það má passa sig á að yfirfæra ekki velgengni á Íslandi á mun stærri markaði, þar geta verið önnur lögmál að verki. En hitt er mikilvægara að hafa áræði til að fara á aðra markaði og læra af mistökunum,“ segir Halldór.
Nýsköpun Tækni Tengdar fréttir Vilja ná sömu dreifingu um heiminn og Covid-19 „Það er ekki hægt að verða stærri en stærsti fiskurinn í sjónum nema vera með góðan grunn og okkur hefur nú þegar tekist að sanna að fólk vill nota vöruna. Það sem þarf hins vegar að gerast núna er varan þarf að sanna sig á mörkuðum utan landsteinanna og hún þarf að geta dreift sér sjálf, manna á milli, nokkurn veginn eins og kórónuveiran,“ segir Ásgeir Vísir, einn eigenda Smitten stefnumótaappsins sem kynnt var til sögunnar laust fyrir síðustu jól. 10. maí 2021 07:02 Arkitektarnir sem selja íslenska ull um allan heim „Ég fór til föðurömmu minnar, Katrínar Gunnarsdóttur, á hverjum laugardegi í mörg ár frá því að ég var um það bil níu ára. Þá gekk ég frá Álfheimum í Efstastundið til hennar, sat hjá henni í litla eldhúsinu hennar og við prjónuðum saman með útvarps-gufuna í bakgrunninu. Amma eldaði saltfisk með hamsatólg í hádeginu, brauðsúpu með rúsínum eða rabbabaragraut í eftirmat og bakaði svo vöfflur klukkan þrjú,“ segir Kristín Brynja Gunnarsdóttir arkitekt og annar eigandi fyrirtækisins Einrúm um aðdragandann að því að Einrúmbandið varð til. 3. maí 2021 07:01 Stórsókn framundan en fyrstu kynningarnar hálf vandræðalegar „Fyrstu fjárfestinga kynningarnar okkar Stefáns nafna míns og meðstofnandi í Solid Clouds, voru nú ekki uppá marga fiska. Ég gleymi því aldrei þegar að við æfðum okkur fyrir framan vini og kunningja. Dómarnir voru þeir að ég sneri bakinu í gesti á meðan ég var með framsögu og Stefán félagi minn talaði svo lágt að í honum heyrði enginn. Loks sagði einn í hópnum að hann væri engu nær um hvað við værum að gera og að kynningin væri með verri framsögum sem hann hefði heyrt!“ segir Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum tölvuleikjaframleiðslufyrirtækisins Solid Clouds. 26. apríl 2021 07:00 610 greiðandi viðskiptavinir erlendis frá en þrír á Íslandi „Í dag erum við með um 610 greiðandi viðskiptavini í sex heimsálfum. Þar af eru þrír á Íslandi. Einnig erum við með tugi þúsunda notenda á „freemium" eða fríplaninu okkar, og þar af eru einhverjir tugir eða hundruði á Íslandi,“ segir Jóhann Tómas Sigurðsson framkvæmdastjóri CrankWheel. Til samanburðar má nefna að fyrir fimm árum síðan voru greiðandi viðskiptavinir CrankWheel sextán talsins, þar af fimmtán á Íslandi en einn erlendis. 29. mars 2021 07:01 Nýsköpunarverkefni í kjölfar Covid sem skilaði af sér tugmilljóna króna viðskiptum „Raunin var að fjöldi þátttakenda fimmfölduðust frá árinu áður og fóru úr þúsund gestum í fimm þúsund. Ánægja gesta hefur aldrei mælst hærri og 97% þeirra sem svöruðu ánægjukönnuninni voru ánægðir með nýja ráðstefnuvefinn,“ segir Auður Inga Einarsdóttir markaðsstjóri Advania um þá óvæntu en góðu þróun sem varð í kjölfar Covid, þegar Advania þróaði stafrænan viðburðarvef til að bregðast við þeirri stöðu að geta ekki haldið sína árlegu haustráðstefnu í Hörpu. 22. mars 2021 07:00 Mest lesið Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Fleiri fréttir Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Sjá meira
Vilja ná sömu dreifingu um heiminn og Covid-19 „Það er ekki hægt að verða stærri en stærsti fiskurinn í sjónum nema vera með góðan grunn og okkur hefur nú þegar tekist að sanna að fólk vill nota vöruna. Það sem þarf hins vegar að gerast núna er varan þarf að sanna sig á mörkuðum utan landsteinanna og hún þarf að geta dreift sér sjálf, manna á milli, nokkurn veginn eins og kórónuveiran,“ segir Ásgeir Vísir, einn eigenda Smitten stefnumótaappsins sem kynnt var til sögunnar laust fyrir síðustu jól. 10. maí 2021 07:02
Arkitektarnir sem selja íslenska ull um allan heim „Ég fór til föðurömmu minnar, Katrínar Gunnarsdóttur, á hverjum laugardegi í mörg ár frá því að ég var um það bil níu ára. Þá gekk ég frá Álfheimum í Efstastundið til hennar, sat hjá henni í litla eldhúsinu hennar og við prjónuðum saman með útvarps-gufuna í bakgrunninu. Amma eldaði saltfisk með hamsatólg í hádeginu, brauðsúpu með rúsínum eða rabbabaragraut í eftirmat og bakaði svo vöfflur klukkan þrjú,“ segir Kristín Brynja Gunnarsdóttir arkitekt og annar eigandi fyrirtækisins Einrúm um aðdragandann að því að Einrúmbandið varð til. 3. maí 2021 07:01
Stórsókn framundan en fyrstu kynningarnar hálf vandræðalegar „Fyrstu fjárfestinga kynningarnar okkar Stefáns nafna míns og meðstofnandi í Solid Clouds, voru nú ekki uppá marga fiska. Ég gleymi því aldrei þegar að við æfðum okkur fyrir framan vini og kunningja. Dómarnir voru þeir að ég sneri bakinu í gesti á meðan ég var með framsögu og Stefán félagi minn talaði svo lágt að í honum heyrði enginn. Loks sagði einn í hópnum að hann væri engu nær um hvað við værum að gera og að kynningin væri með verri framsögum sem hann hefði heyrt!“ segir Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum tölvuleikjaframleiðslufyrirtækisins Solid Clouds. 26. apríl 2021 07:00
610 greiðandi viðskiptavinir erlendis frá en þrír á Íslandi „Í dag erum við með um 610 greiðandi viðskiptavini í sex heimsálfum. Þar af eru þrír á Íslandi. Einnig erum við með tugi þúsunda notenda á „freemium" eða fríplaninu okkar, og þar af eru einhverjir tugir eða hundruði á Íslandi,“ segir Jóhann Tómas Sigurðsson framkvæmdastjóri CrankWheel. Til samanburðar má nefna að fyrir fimm árum síðan voru greiðandi viðskiptavinir CrankWheel sextán talsins, þar af fimmtán á Íslandi en einn erlendis. 29. mars 2021 07:01
Nýsköpunarverkefni í kjölfar Covid sem skilaði af sér tugmilljóna króna viðskiptum „Raunin var að fjöldi þátttakenda fimmfölduðust frá árinu áður og fóru úr þúsund gestum í fimm þúsund. Ánægja gesta hefur aldrei mælst hærri og 97% þeirra sem svöruðu ánægjukönnuninni voru ánægðir með nýja ráðstefnuvefinn,“ segir Auður Inga Einarsdóttir markaðsstjóri Advania um þá óvæntu en góðu þróun sem varð í kjölfar Covid, þegar Advania þróaði stafrænan viðburðarvef til að bregðast við þeirri stöðu að geta ekki haldið sína árlegu haustráðstefnu í Hörpu. 22. mars 2021 07:00