Lífið

Andervel og JóiPé gefa út myndband þar sem tekist er á við nýjan veruleika

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið kom út ú dag og á José hugmyndina á bakvið myndbandið og leikstýrir því í samstarfi við tökumanninn og ljósmyndarann Patrik Ontkovic.
Myndbandið kom út ú dag og á José hugmyndina á bakvið myndbandið og leikstýrir því í samstarfi við tökumanninn og ljósmyndarann Patrik Ontkovic.

Andervel og JóiPé senda frumsýna í dag nýtt myndband við lagið Faðmaðu mig. Lagið kom út á stuttskífunni Noche sem mexíkóski tónlistarmaðurinn Andervel, öðru nafni José Louis Anderson, sendi frá sér í október 2020.

José á hugmyndina á bakvið myndbandið og leikstýrir því í samstarfi við tökumanninn og ljósmyndarann Patrik Ontkovic. Í myndbandinu er tekist á við nýjan veruleika og þörfina fyrir snertingu og nánd, í samhengi við heimsfaraldur. Pólska leikkonan Magdalena Tworek leikur á móti José í myndbandinu.

Platan Noche er gefin út á Íslandi og pródúseruð af hinum færeyska Sakaris Emil Joensen, sem hlaut íslensku tónlistarverðlaunin 2016 fyrir samstarf með Arnóri Dan og er einn nánasti samstarfsmaður Janusar Rasmussen sem tilnefndur var til Norrænu tónlistarverðlaunanna 2020. Andervel hefur vakið athygli í heimalandinu og hafa stórir miðlar á borð við Al Día og El Universal fjallað um útgáfuna.

Platan er unnin í nánu samstarfi við Sóley Stefánsdóttur tónlistarkonu, en hún var leiðbeinandi José á tónsmíðabraut við Listaháskóla Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.